Útlendingar á Íslandi afar ósáttir við frumvarp Þorbjargar - Ótækt sé að breyta reglunum eftir á

Þegar hafa verið fram lagðar fram á þriðja tug umsagna um frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra til breytinga á lögum um útlendinga, sem nú er til meðferðar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. Athugasemdirnar eru flestar frá fólki frá löndum utan EES sem býr á Íslandi. Flestir gera grein fyrir sínum persónulegu aðstæðum í umsögnunum. Aðstæður fólksins eru misjafnar og því eru mismunandi atriði í frumvarpinu gagnrýnd í umsögnunum. Eitt atriði kemur þó fyrir í flestum þeirra en það eru áform um að lengja áskilinn dvalartíma hérlendis til að geta átt rétt á ótímabundnu dvalarleyfi en í frumvarpinu kemur skýrt fram að þetta muni einnig eiga við um umsóknir um ótímabundið dvalarleyfi sem þegar séu í vinnslu. Í umsögnunum er þetta harðlega gagnrýnt og sagt afar ósanngjarnt. Verið sé að breyta reglunum eftir á sem auki óöryggi þessa hóps og setji líf hans í uppnám. Í einni umsögn er því beinlínis lýst að áhugi viðkomandi og raunar fleiri einstaklinga, frá löndum utan EES, á að búa og starfa á Íslandi sé að minnka.

Úr fjórum í sex

Í frumvarpinu eru gerðar margvíslegar breytingar á lögum um útlendinga sem snúa mörg að því að herða skilyrði fyrir því að útlendingar frá löndum utan EES geti fengið að búa og starfa á Íslandi.

Í 1. málsgrein 58. greinar laganna segir:

„Heimilt er að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.“

Síðan eru tiltekin ýmis skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis.

Í frumvarpi dómsmálaráðherra er þessi tími hins vegar lengdur í sex ár.

Í greinargerð með frumvarpinu er þetta meðal annars rökstutt með vísan til samræmingar við reglur á Norðurlöndunum og þess að ótímabundið dvalarleyfi feli í sér varanlega og sjálfstæða dvalarheimild sem sé óháð þeim grundvelli sem upphafleg dvöl byggðist á og verði ekki afturkölluð nema samkvæmt þröngum heimildum 59. greinar laganna. Þá sé ótímabundið dvalarleyfi skref í átt að íslenskum ríkisborgararétti.

Áskilnaður um sex ára dvöl muni gefa traustari mynd af raunverulegum tengslum, framfærslugetu og aðlögun umsækjanda að samfélaginu en gildandi skilyrði. Skammur ávinnslutími í samanburði við aðrar Norðurlandaþjóðir samhliða lágum gjöldum og vægum skilyrðum að öðru leyti hafi gert íslenska kerfið aðgengilegra en kerfi nágrannaríkjanna hvað þetta snerti án þess að um hafi verið að ræða meðvitaða stefnumörkun stjórnvalda. 

Í frumvarpinu er þó ákvæði um að fjögurra ára skilyrðið muni áfram gilda fyrir þá sem hafa verið með dvalarleyfi á grundvelli starfs sem krefst sérfræðiþekkingar eða eru yfir ákveðnum tekjumörkum.

Eftir á

Í frumvarpinu er einnig sérstaklega tekið fram að þessar breytingar á lágmarksdvalartíma og önnur ákvæði í frumvarpinu muni ekki eiga bara við um mál sem komi til sögunnar eftir gildistöku laganna. Muni hinu nýju ákvæði eiga við um allar umsóknir um dvalarleyfi og ótímabundin dvalarleyfi sem ekki sé lokið með ákvörðun við gildistöku laganna. 

Það þýðir í raun að umsóknir um dvalarleyfi sem lagðar voru fram á grundvelli núgildandi útlendingalaga muni falla undir hin breyttu lög. Dvalarleyfi sem hafa hins vegar verið gefin út halda gildi sínu. 

Í áðurnefndum umsögnum við frumvarpið eru gerðar sérstakar athugasemdir við þetta og því andmælt. Segir í mörgum umsögnunum að með þessu sé reglunum breytt eftir að umsóknir hafi verið lagðar fram sem sé ósanngjarnt. Minna sumir umsagnaraðilar á að málsmeðferðartími Útlendingastofnunar sé oft langur og umsækjendur hafi enga stjórn á honum.

Menntun

Eins og áður segir þá eru umsagnirnar flestar frá fólki frá löndum utan EES sem býr hér á landi. Flestir lýsa sínum persónulegu aðstæðum og þær eru misjafnar. Sumir hafa fengið hér alþjóðlega vernd, aðrir hafa komið hingað til háskólanáms og sumir lokið því og í kjölfarið fengið störf hér á landi sem krefjast sérfræðimenntunar. Enn aðrir hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli starfs sem krefst sérfræðimenntunar. Meðal umsagnaraðila er til að mynda finna hjúkrunarfræðing á Landspítalanum og prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík.

Í mörgum umsagnanna er tekið sérstaklega fram að íslensk stjórnvöld hafi og eigi að hafa rétt á að ráða þeim reglum sem gildi á Íslandi um innflytjendur. Það sé hins vegar ósanngjarnt að breyta reglum vegna umsókna um dvalarleyfi sem séu þegar í vinnslu hjá Útlendingastofnun og hafi verið lagðar fram á grundvelli núgildandi reglna. Leggja sumir til að þessu ákvæði í frumvarpinu verði breytt og að ákvæði frumvarpsins verði látin gilda um umsóknir sem verði lagðar fram eftir gildistöku laganna. Athygli vekur að nokkur hluti umsagnanna er frá fólki sem búið hefur á landinu í einmitt fjögur ár. Segja viðkomandi að með því að lengja lágmarksdvalartímann í sex ár séu framtíðaráform þeirra sett í uppnám þar sem bíða þurfi í tvö ár í viðbót eftir því að fá niðurstöðu um hvort ótímabundið dvalarleyfi fáist.

Framtíðin

Í umsögnunum benda margir á að með hinu hertu reglum frumvarpsins séu auknar líkur á að íslenskt samfélag fari á mis mið mikinn mannauð. Fólk sem hafi lagt sitt af mörkum til samfélagsins með þekkingu sinni og menntun sé líklegra til að halda af landi brott og erfiðara verði fyrir fólk sem hafi yfir sérfræðikunnáttu að ráða að flytja til Íslands.

Margir leggja áherslu á að útlendingar, sem ekki séu komnir með ótímabundin dvalarleyfi en hafi sótt um, hafi skipulagt líf sitt og framtíðaráform í samræmi við núgildandi lög:

„Að láta þessar breytingar gilda afturvirkt um virkar umsóknir sem eru í vinnslu er afar ósanngjarnt og ómannúðlegt.“

Ein af umsögnununum kemur frá konu sem heitir Lisa Maria Wu. Hún er frá Nýja Sjálandi en hefur búið á Íslandi frá 2024 og er prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík (HR). Hún er með dvalarleyfi á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar og starfsins við HR og segir að líklega muni því, samkvæmt fyrirhuguðum lagabreytingum, nægja fyrir hana að búa hér í fjögur ár til að fá ótímabundið dvalarleyfi. Hún gerir þrátt fyrir það athugasemdir við hina fyrirhuguðu almennu hækkun á lengd búsetu, til að eiga rétt á ótímabundnu dvalarleyfi. Hún segist hafa unnið hér á landi með íslenskum og erlendum kollegum og vilji laða hingað til lands hæfileikafólk sem geti lagt sitt af mörkum til vísindarannsókna hérlendis.

Wu segist þar til nýlega hafa verið mjög áhugasöm um að dvelja á Íslandi í fyrirsjáanlegri framtíð og að leggja sitt af mörkum til samfélagsins en sá áhugi sé að minnka. Hún segist hafa orðið vör við svipuð viðhorf hjá erlendum vinum og kollegum hér á landi. Frumvarpið hafi vakið í fyrsta sinn hjá henni hugleiðingar um:

„Hvort fólk frá löndum utan EES sé að verða síður velkomið á Íslandi.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab