Simeone bætti með og skaut á gagnrýnendur
Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 23. nóvember 2026 21:30
Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid / Getty
Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, er orðinn sigursælasti þjálfari í sögu spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur gegn Getafe í gær.
Þetta var 345. deildarsigur Argentínumannsins, sem bætti þar með met Luis Aragones. Simeone þurfti aðeins 567 leiki til að ná þessum árangri, 189 færri en Aragones þurfti til að vinna 344 leiki.
Simeone hefur stýrt Atletico frá árinu 2011 og unnið átta titla með félaginu, þar af tvo spænska meistaratitla.
„Þetta gleður mig. Ég finn ekki oft margar ástæður til að gleðjast en það liggur ótrúleg vinna að baki þessu,“ sagði Simeone.
Hann svaraði einnig gagnrýni á varkáran leikstíl sinn.
„Það er alltaf verið að tala um að við séum varnarlið. Þú vinnur ekki 345 leiki með því einu að verjast. Er það yfirhöfuð hægt?“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗