Stórleikari segist eiga Karli konungi mikið að þakka - „Ég er mjög stoltur af þér“
Einn af þekktustu leikurum Breta Idris Elba hefur greint frá því að styrkur frá góðgerðarsjóði, sem Karl Bretakonungur hefur haldið úti í hálfa öld, hafi átt mikinn þátt í að hann náði skapa sér eins farsælan feril sem leikari og raun ber vitni. Styrkinn nýtti Elba til að borga fyrir nám í leiklist og segir að hefði hann ekki fengið styrkinn þá hefði líf hans án efa orðið afar ólíkt því sem raunin varð.
Þetta kemur fram í kynningarstiklu fyrir heimildamynd um sjóðinn sem frumsýnd verður á Netflix á annan í jólum næstkomandi. Umræddur sjóður hefur verið starfræktur í 50 ár en heitir á ensku The King´s Trust en áður en Karl var konungur var sjóðurinn kenndur við þáverandi titil hans, Prins af Wales.
Karl stofnaði sjóðinn með það að markmiði að aðstoða einkum ungt fólk úr efnaminni fjölskyldum til að bæta líf sitt og láta drauma sína rætast. Þetta gerir sjóðurinn með til að mynda námsstyrkjum, starfsþjálfun, lánum til uppbyggingar lánþega á eigin fyrirtækjum o.fl. Á þessum 50 árum hefur yfir ein milljón manna í Bretlandi notið aðstoðar sjóðsins en sjóðurinn rekur síðan deildir víða um heim.
Styrkurinn og lífið
Idris Elba er líklega einn sá frægasti sem notið hefur aðstoðar sjóðsins. Hann er fyrir löngu orðinn heimsfrægur fyrir leik sinn í ýmsum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. En meðal hlutverka sem hann hefur farið með eru Nelson Mandela, guðinn Heimdallur og lögreglumaðurinn harðsnúni John Luther.
Idris Elba. Mynd: Getty.
Elba, sem er á sextugsaldri, var aðlaður fyrr á þessu ári og ber því nú titilinn sir.
Í kynningarstiklu fyrir áðurnefnda heimildamynd, sem ber titilinn The Trust, segir Elba, sem er sérstakur sendiherra sjóðsins í dag, frá því að þegar hann var 18 ára hafi hann fengið styrk frá sjóðnum sem hann hafi notað til að greiða fyrir leiklistarnám. Elba segir í stiklunni að með heimildamyndinni sé ætlunin að varpa ljósi á mikilvægi starfs sjóðsins og hversu miklu máli hjálp eins og hann fékk geti skipt fyrir milljónir manna um allan heim.
Ljóst er að Elba telur að styrkurinn hafi skipt sköpum í lífi hans. Hann segir í stiklunni að líf hans hafi getað orðið allt öðruvísi. Hann muni ekki alveg nákvæmlega hvernig lífið varð með þessum hætti en ljóst sé að Karl konungur hafi hjálpað að móta líf hans. Allt hafi það byrjað með The King´s Trust.
Í stiklunni segir konungurinn við leikarann heimsþekkta:
„Ég er mjög stoltur af þér.“
Í myndinni kynnir Elba áhorfendur einnig fyrir ýmsum öðrum sem notið hafa stuðnings sjóðsins og fer með konunginn á fund móður sinnar. Segir konungurinn við móður Elba að hann aðrir forsvarsmenn sjóðsins séu mjög ánægðir með að hafa son hennar með í því að vekja athygli á starfinu.
Segir Karl í stiklunni að mikil þörf sé enn fyrir starfsemi sjóðsins en það sé stórkostlegt að sjá hversu mörgum sjóðurinn hefur hjálpað. Segir konungurinn um stofnun sjóðsins á sínum tíma:
„Ég vonaðist til að hann yrði fjárfesting í lífi fólks.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗