Kynntist unglingsstúlku í tölvuleik - Mæðgin fylgdust í beinni með björgun stúlkunnar úr klóm kynferðisbrotamanns

Eftir að hinn sextán ára gamli Landon Tresp var búinn að ljúka daglegum heimilisverkum sínum fór hann inn í svefnherbergi að spila nettölvuleik á fartölvunni sinni, Among Us, sem Landon lýsir sem „eins konar útgáfu af spilinu Clue sem gerist í geimnum“. Hann hóf fljótlega spjall við annan spilara, sem sagðist vera unglingsstúlka og þau „náðu strax vel saman,“ segir hann í samtali við BBC.

Landon sagði henni að honum líkaði vel við nafnið hennar Jenny, en hún upplýsti að það væri ekki hennar rétta nafn. Hún sagðist hafa strokið að heiman og vera haldið nauðugri, hundruð kílómetra frá heimili sínu, þótt hún vissi ekki nákvæmlega hvar hún væri. Stúlkan, sem er 17 ára, hafði verið týnd í meira en ár.

Landon var sjálfur í fjallabústað fjölskyldu sinnar í Colorado í Bandaríkjunum. Hann segist hafa fundið fyrir hjálparleysi vegna orða stúlkunnar. Eftir því sem Jenny opnaði sig meira um aðstæður sínar varð Landon áhyggjufyllri. Eftir að hafa sagt Landon að hún hefði strokið að heiman, sagði Jenny að eldri maður hefði farið með hana yfir fylkjamörk og neitað henni um að fara. Hún var skráð sem týnd manneskja og sendi Landon tengla á fréttir af hvarfi sínu. Hún taldi hins vegar að lögreglan væri hætt að leita að henni. 

Among Us tölvuleikurinn, skjáskot úr leiknum.

Jenny var hrædd og örvæntingarfull og eftir að hafa komist að frekari upplýsingum í gegnum spjall þeirra ákvað Landon að segja móður sinni, Khristinu, frá málinu þann 31. október á þessu ári. Khristina, sem er 41 árs hjúkrunarfræðingur og móðir fimm barna, var að mála yngri börnin sín fyrir hrekkjavökuna þegar Landon sagði henni frá stöðunni.

„Eftir að hann hafði talað við hana í um það bil viku minntist hann á að hann hefði kynnst stúlku á netinu, og að hún væri mjög indæl,“ segir Khristina, sem varaði hann við því að maður vissi oft ekki hvort segði satt um hver viðkomandi væri á netinu. „Hún á mjög erfitt og leitar bara að vini,“ sagði Landon við móður sína. Khristina brást skjótt við og hafði samband við Jenny í gegnum Discord, samskiptaforrit sem býður upp á dulkóðun. Í samtalinu sagði Jenny frá því að hún hefði gengið í gegnum „margra ára misnotkun og átt við gríðarlega mikla erfiðleika að stríða“. Innan fárra klukkustunda var Jenny farin að kalla Khristinu „mömmu“. „Hún fékk eitt tækifæri til að biðja um hjálp, og hún valdi mig,“ segir Khristina.

Hafði samband við alríkislögregluna og móður Jenny

Þetta varð til þess að mæðginin hófu aðgerðir til að finna netvinkonu hans, hafa samband við móður hennar og vinna með alríkislögreglunni (FBI). Að lokum urðu þau vitni að því að stúlkunni var bjargað, aðeins sólarhring eftir að Landon lét Khristinu fyrst vita af erfiðri stöðu hennar.

Móðirin frá Colorado áttaði sig á því að alvarleg staða væri uppi þegar hún las fréttir af horfnum einstaklingum. Jenny vissi að hún væri í Oregon og nefndi borgarheiti, en hún vissi ekki nákvæmlega hvar henni var haldið. Khristina vissi að hún þyrfti meiri upplýsingar. Hún bað Jenny um að finna póstsendingu eða annað skjal í húsinu þar sem fullt nafn kæmi fram, og það gerði stúlkan. „Þá hófst vinnan,“ segir Khristina, sem hóf að leita í skatta- og fasteignaskrám.

Khristina þrengdi hringinn að ákveðnum heimilisföngum og leitaði síðan að þeim á fasteignavef til að finna myndir. Hún sýndi Jenny myndirnar, sem staðfesti að á annarri þeirra væri staðurinn þar sem henni var haldið. „Það næsta sem hún bað mig um var að segja engum frá þessu fyrr en sá sem hélt henni fanginni væri farinn, hún sagði að hann ætti vopn í húsinu og að hún væri mjög hrædd,“ sagði Khristina.

Jenny lofaði Khristinu að hún myndi hringja aftur í gegnum leikjavettvanginn þegar maðurinn færi morguninn eftir. Á meðan hóf Khristina leit að því lögregluembætti sem fór með mál horfnu stúlkunnar. Hún hafði samband við móður Jennyar í gegnum samfélagsmiðla, ræddi stuttlega við hana í síma og fékk síðan símtal frá fulltrúa alríkislögreglunnar (FBI).

„Hefur þú séð hana á lífi?“ spurði fulltrúinn Khristinu. „Og ég svaraði: Já, ég hef séð hana; við töluðum saman í myndsímtali, ég hef séð hana. Og hún sagði: Guð minn góður, ég trúi ekki að þetta sé að gerast,“ rifjar Khristina upp.

Kynntist gerandanum á samfélagsmiðlum einu og hálfu ári áður

Þegar Jenny hringdi aftur í Khristinu eftir að maðurinn, sem talinn er hafa haldið henni fanginni, fór að heiman, fylgdist FBI með samtalinu. Samkvæmt lýsingu á samtalinu í ákæruskjölum gegn manninum sagði Jenny frá því hvernig hún hefði kynnst Adam Hunter Harmel á samfélagsmiðlum í maí 2025.

Hann sagðist vera fatlaður og stríða við alvarleg mjaðmavandamál og bauð Jenny peninga ef hún vildi aðstoða hann við að komast til Oregon. Eftir að hann sótti hana í Utah kastaði Harmel símanum hennar í á, ók með hana til Oregon og hélt henni í kjallaranum heima hjá sér. Hann neyddi Jenny til að sofa upp við vegg í rúmi sínu, með hníf undir koddanum, til að koma í veg fyrir að hún gæti flúið. Hann gaf Jenny farsíma sem ekki var hægt að hringja úr, en hann gat tengst þráðlausu neti, og þannig gat hún spilað tölvuleikinn á netinu.

Khristina í myndsímtali við Jenny og hnífurinn sem gerandinn svaf með.

Fram kemur í skjalinu að hinn 39 ára gamli Harmel „varð ofbeldisfullur og árásargjarn“; hann sló hana meðal annars og beitti hana kynferðisofbeldi. Hann er einnig sagður hafa neytt Jenny til að fjarlægja tannréttingarnar sínar með töng, svo ekki væri hægt að bera kennsl á hana. Á meðan Khristina og alríkislögreglan (FBI) heyrðu allt þetta, var lögreglan að búa sig undir að koma Jenny í öruggt skjól, eftir að hafa fengið upplýsingar um hvar hún var niðurkomin.

Meðan Harmel var fjarri heimilinu voru lögreglumenn sendir á vettvang, og Khristina undirbjó Jenny undir flóttann. Jenny sagði Khristinu að hún hefði áður reynt að flýja, en án árangurs.

„Lögreglan var frábær... hún hélt mér upplýstri um stöðuna; „Við erum níu mínútur í burtu, við erum sjö mínútur í burtu,“ segir Khristina, sem var í símasambandi við Jenny allan tímann, á meðan sonur hennar, Landon, fylgdist með við hlið hennar.

Khristina heyrði að fleira fólk var í húsinu hjá Jenny og óttaðist að einhver myndi átta sig á því sem var að gerast og veita stúlkunni áverka. Hún lét þó ekkert uppi um þessar áhyggjur sínar við Jenny.

„Ég vil að þú andir djúpt með mér,“ sagði hún við Jenny. „Þegar lögreglumaður segir mér til og ég læt þig vita þá vil ég að þú hlaupir upp stigann eins hratt og þú getur... og grípir í hurðina niður í kjallarann. Haltu svo áfram eftir ganginum og gríptu í útidyrnar... ekki stoppa.“ Mæðginin fylgdust með þegar Jenny hljóp í fang lögreglumanns.

Gerandinn bíður réttarhalda

Harmel er nú í varðhaldi alríkisyfirvalda og hefur verið ákærður fyrir að flytja manneskju á milli staða í þeim tilgangi að beita hana kynferðisofbeldi. Fjölmiðlar í Oregon greindu einnig frá því að hann hefði verið sakaður um að hafa beitt sex ára barn kynferðisofbeldi mánuðina áður en Jenny hvarf og að nálgunarbann vegna kynferðisofbeldis hefði verið sett á hann í mars 2025. Hann situr enn í fangelsi og bíður réttarhalda.

Jenny er áfram í daglegu sambandi við Khristinu og Landon, sem hefur enn gaman af því að spila tölvuleiki á netinu með henni. „Stundum sitjum við bara saman í myndspjalli, svo hún viti að það er einhver sem hugsar um hana,“ segir Khristina. „Hún var í myndspjalli í gærkvöldi á meðan ég eldaði kvöldmatinn... það er gott að vita til þess að þegar hún á slæman dag eða líður illa, þá getur hún hringt strax í mig eða Landon. Henni gengur ótrúlega vel, miðað við það sem hún hefur gengið í gegnum.“

Þremenningarnir hafa ekki enn hist í eigin persónu, en unnið er að því að láta það verða að veruleika. „Ég vona að ég geti bráðum faðmað Jenny,“ segir Khristina.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab