Söngleikur um George Floyd hneykslar - „Aldrei á að dæma sýningu eftir titlinum“
Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. nóvember 2026 22:30
George Floyd var myrtur af lögreglumönnum í Minneapolis árið 2020.
Söngleikur um morðið á George Floyd hefur fengið dræmar viðtökur og svo virðist sem hann muni aldrei verða sýndur. Fyrirtækið sem ætlaði að sýna verkið hefur verið bannað á Broadway.
Tímaritið People greinir frá þessu.
Auglýsingar fyrir söngleikinn „George Floyd the Musical“ hafa vakið mikla hneykslun og fyrirtækið sem birti þær hefur verið bannað á Broadway. Er verkefnið sagt verið ósmekklegt og ógeðfellt.
George Floyd var myrtur af lögreglumönnum þann 25. maí árið 2020 í Minneapolis. En hann hafði verið stöðvaður af lögreglumönnunum fyrir að nota falsaðan 20 dollara seðil í kjörbúð. Var hann kæfður til bana undir hné eins lögreglumannsins.
Málið vakti gríðarlega reiði á meðal þeldökkra í Bandaríkjunum og umfangasmikil mótmæli undir yfirskriftinni Black Lives Matter hlutu alþjóðlega athygli. Fjórir lögreglumenn hlutu fangelsisdóma og þar af einn, Derek Chauvin, fyrir manndráp.
Féll í grýttan jarðveg
Leikfélagið Busted Broadway auglýsti nýlega áheyrnarprufur fyrir söngleikinn „George Floyd the Musical“ með undirtitlinum „The $20 bill that changed the world!“ eða „20 dollara seðillinn sem breytti heiminum!“
Sjá einnig:
Fyrsta lögreglumanninum í máli George Floyd sleppt úr fangelsi – Hélt fótunum á meðan hann var kæfður
Auglýsingin féll í mjög grýttan jarðveg og hefur verið fjarlægð hjá Playbill sem birtir auglýsingar af þessu tagi. Mun Busted Broadway ekki fá að auglýsa verk í framtíðinni. Lýstu meðal annars nafntogaðir Broadway leikarar hneykslun sinni á auglýsingunni.
Ádeila á menninguna
Talsmenn leikfélagsins koma verkinu hins vegar til varnar og segja það ekki hafa átt að gera lítið úr dauða George Floyd. Þeir höfðu auglýst eftir bæði söngvurum og röppurum til að koma fram í verkinu.
„Söngleikurinn okkar, „George Floyd the Musical“, gerir alls ekki lítið úr hinu hræðilega morði á George Floyd árið 2020, réttlætir það ekki og gerir ekki grín að því. Verkið er ádeila á menninguna, fremur en á einstaklinga,“ segir í tilkynningu þess. „Aldrei á að dæma sýningu eftir titlinum, eins og margir sem hafa aldrei séð handritið eða tónlistina eru að gera núna.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗