Pantanir ruku upp eftir nýtt myndband

Þrjár kynslóðir úrsmiða: Gilbert Ó. Guðjónsson, Gilbert yngri og Sigurður Gilbertsson, ásamt Grímkeli Sigurþórssyni hönnuði lengst t.v.

„Þarsíðasta sumar hafði samband við okkur ungur maður, Marcus Adolf, sem sagðist vera að koma til Íslands eftir nokkra daga. Hann væri kvikmyndagerðarmaður og vildi gera stutta heimildarmynd um fyrirtækið okkar, JS Watch co. Reykjavik,“ segir Grímkell Sigurþórsson, hönnuður og markaðsstjóri fyrirtækisins, og segir að að sjálfsögðu hafi verið vel tekið í það.

„Við heyrum stundum í fólki sem sýnir okkur áhuga því fjallað hefur verið um fyrirtækið víða, bæði í svissneska sjónvarpinu og á CNN og víðar og fólki finnst mjög sérstakt að hér sé svona lítill framleiðandi að búa til sín eigin hágæðaúr,“ segir Grímkell og segir að síðan hafi Marcus birst í versluninni á Laugaveginum og eytt með þeim einum degi og talað við þá og tekið upp.

Fáðu aðgang að þessari grein

Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn.

Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab