Pelicot segist niðurlægð og í áfalli

Gisele Pelicot.

Gisele Pelicot. AFP/Valery Hache

Gisele Pelicot sagðist í dag vera „í áfalli“ eftir að henni bárust fregnir af útgefanda sem notaði nektarmyndir af henni án leyfis.

Útgefandinn, Tinbad, notaði myndirnar til að kynna rit sem fjallar um nauðungarstjórnun út frá sálgreiningu. Um er að ræða myndir og myndbönd sem eiginmaður hennar tók af henni óafvitandi. Bókaútgefandinn er sagður hafa sent þær frá sér í kynningarskyni vegna bókarinnar. Guardian hefur þetta eftir franska miðlinum le Canard enchaîné.

Pelicot, sem er 73 ára, varð heimsfræg árið 2024 þegar hún steig fram sem fórnarlamb eiginmanns síns í Frakklandi. Hann stundaði það að svæfa Pelicot með byrlun lyfja og bauð að minnsta kosti 49 ókunnugum mönnum heim til þeirra til að brjóta á henni kynferðislega.

Útgefandinn, Tinbad, sagðist ekki hafa sent nein myndskeið eða myndir af nauðgunum eiginmannsins en þvertók ekki fyrir að hafa sent nektarmyndir. Hann hefur nú beðist afsökunar á málinu og segir „óheppileg samskiptamistök“ hafa verið gerð.

Myndirnar notaðar til að selja bækur

Pelicot sagðist við fréttamenn í Frakklandi vera í áfalli yfir því að myndir, sem sýndu hennar viðkvæmustu hliðar, skyldu notaðar og sýndar til að selja bækur.

„Ég neita að leyfa einkalífi mínu að verða að auglýsingatóli,“ sagði hún.

Pelicot sagðist ætla að leita til lögfræðinga og sækja útgefandann, Tinbad, og höfundinn, Sabine Prokhoris, til saka. Tinbad hefur sagt að dreifing bókarinnar hafi verið stöðvuð og að hún verði ekki prentuð umfram þau 280 eintök sem eru nú þegar í dreifingu.

„Í dag upplifi ég mig enn og aftur niðurlægða, afhjúpaða og særða,“ sagði Pelicot.

„Eins og réttarhöldin hafi ekki verið nóg.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab