Gossip Girl-bygging sögufrægt hótel

Blake Lively varð heimsfræg þegar hún lék í Gossip Girl í New York. AFP

Það er ómissandi að skoða þekkta staði úr kvikmyndum og sjónvarpsþáttum þegar New York-borg er heimsótt. Hótelið Lotte New York Palace Hotel er eitt þeirra en það þjónaði heimili Serenu van der Woodsen í þáttunum Gossip Girl. 

Blake Lively rifjaði upp gamla tíma og heimsótti hótelið á dögunum. Hún birti síðan mynd af sér á Instagram og lét fylgja með að enginn staður jafnaðist á við heimili manns. Stjarnan var brosandi út að eyrum á myndinni. Hún var í rifnum gallabuxum og dökkbláum jakka og sást strjúka í gegnum hárið. 

Hér má sjá nýja mynd af Blake Lively fyrir utan hótelið. Skjáskot/Instagram

Lúxushótel

Hótelið er staðsett á Madison Avenue í Midtown á Manhattan. Þegar þættirnir voru teknir upp hét hótelið einfaldlega New York Palace Hotel eða var kallað Palace. Árið 2015 keypti Lotte Hotels & Resorts samsteypan hótelið og bætti nafninu Lotte fyrir framan. Byggingin á rætur að rekja til 1882 og var þá glæsilegt herrasetur í einkaeigu. Nú býr það yfir ljóma gömlu New York en býr á sama tíma yfir nútíma lúxus. Hótelið er með 900 herbergjum og svítum og er ekki óeðlilegt að greiða í kringum 90 þúsund fyrir nótt á hótelinu. 

Lotte New York Palace Hotel er gamalt hús í grunninn en er nú stórt hótel. Ljósmynd/Lotte New York Palace Hotel

Hótelið er glæsilegt að innan.

Hótelið er glæsilegt að innan. Ljósmynd/Lotte New York Palace Hotel

New York er stórborg.

New York er stórborg. Ljósmynd/Lotte New York Palace Hotel

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab