Draumaendurkoma hjá Elíasi
Midtjylland vann frábæran 2:0-útisigur á Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í Kaupmannahöfn í kvöld. Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson sneri þar aftur á völlinn eftir meiðsli.
Sigurinn var mikilvægur í toppbaráttunni en Midtjylland er á toppi deildarinnar með 35 stig, þremur stigum meira en FC Köbenhavn.
Elías hafði ekki leikið með Midtjylland síðan hann meiddist skömmu fyrir landsleikjahléið í september.
Hann missti því af fjórum landsleikjum Íslands í þeim glugga og tveimur til viðbótar í C-deild Þjóðadeildarinnar í nýafstöðnu landsleikjahléi.
Gue-Song Cho skoraði fyrra mark Midtjylland en seinna markið var sjálfsmark.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗