Slökkviliðið í „bagalegri“ stöðu
Eigandi íbúðarhúsnæðis sem hafði verið breytt neitaði slökkviliðinu um aðgengi að hluta húsnæðisins. Ekki gekk hjá slökkviliðinu að fá dómsúrskurð. Tvö nýleg banaslys, við Bræðraborgarstíg og Funahöfða, eru sögð afleiðing slæmra brunavarna í breyttu húsnæði. Samsett mynd/mbl.is/Eggert
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er í einkennilegri stöðu eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur og Landsréttur tóku ekki efnislega afstöðu til beiðni slökkviliðsins um dómsúrskurð. Slökkviliðið hafði leitað úrskurðar eftir að eigandi húsnæðis í Reykjavík neitaði að veita starfsmönnum þess aðgang vegna eldvarnareftirlits.
Lögum um brunavarnir var breytt árið 2023 og slökkviliðinu veittar auknar heimildir til eftirlits.
Bjuggumst við dómsúrskurði
„Við bjuggumst við því að fá dómsúrskurð þar sem við fengjum aðgang að íbúðarhúsnæðinu, líkt og tilgreint er í nýjum lögum en mögulega er það ekki orðað nægilega skýrt þar. Við teljum samt að þau séu skýr og hefðum viljað að dómari tæki afstöðu í málinu,“ segir Birgir Finnsson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Umræða um eldvarnir hefur verið hávær eftir banaslysin við Bræðraborgarstíg og Funahöfða, þar sem rýmum hafði verið breytt og eldvarnir voru ófullnægjandi.
Útilokar ekki Hæstarétt
„Þetta er mjög bagaleg staða að vera í. Samkvæmt lögum og reglum eigum við að fylgja málum eftir ef við teljum að brunavörnum sé ábótavant í íbúðarhúsnæði. Við leituðumst því við að fá eigandann til að leyfa okkur að koma og skoða, til að kanna hvort þetta eigi við rök að styðjast eða hvort brunavarnir séu í lagi. Ef eigandi neitar okkur síðan um aðgang er ekki ásættanlegt að eftirlitið taki margar vikur eða mánuði,“ segir Birgir.
Spurður hvort til greina komi að fara með málið fyrir Hæstarétt segist Birgir ekkert útiloka í þeim efnum.
SHS hafði fengið ábendingu um að í húsinu, sem óskað hafði verið eftir dómsúrskurði um aðgang að, gætu verið um 19 herbergi, jafnvel fleiri smærri rými, og að allt að 25 manns væru skráðir þar.
Slökkviliðið taldi þetta gefa tilefni til gruns um óleyfilegar breytingar, fleiri svefnrými en samþykktar teikningar sýndu og annmarka á flóttaleiðum, reykskynjurum og brunahólfun.
Eftir að eigandi neitaði að veita slökkviliðinu fullan aðgang að húsnæðinu óskaði það eftir dómsúrskurði. Héraðsdómur sagði í úrskurði sínum að slökkviliðið ætti að fullreyna samstarf við eigandann áður en gripið yrði til dómsúrskurðar.
Þess vegna fór héraðsdómur ekki ofan í það hvort brunavarnirnar væru í raun ófullnægjandi. Landsréttur tók heldur ekki efnisafstöðu, en af annarri ástæðu: Lögin kveða ekki á um kæruheimild frá slíkum úrskurði til Landsréttar. Málinu var því vísað frá þar án kröfu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗