Kemst kokkalandsliðið alla leið á toppinn?

Íslenska kokkalandsliðið hefur tvisvar náð þriðja sæti á Ólympíuleikunum í matreiðslu. Nú beinast augun að heimsmeistaramótinu í Lúxemborg. Kemst liðið á verðlaunapall og tekst því jafnvel að vinna heildarkeppnina?

Liðið keppir á morgun, þriðjudag, á síðari keppnisdegi sínum eftir að hafa hlotið gull fyrir þriggja rétta kvöldverð á laugardaginn. Það gull er þegar í höfn en samanlagður árangur úr báðum keppnisgreinum ræður lokasætinu á mótinu.

Íslenska kokkalandsliðið varð í sjötta sæti á síðasta heimsmeistaramóti í Lúxemborg árið 2022. Bestum árangri sínum á mótinu náði liðið árið 2014 þegar það varð í fimmta sæti samanlagt eftir að hafa fengið gull í báðum keppnisgreinum.

Meðan beðið er niðurstöðu rifjum við upp rúmlega hálfrar aldar verðlaunasögu íslenskra kokka með hliðsjón af samantekt Smára Valtýs Sæbjörnssonar á Veitingageiranum. 

Íslenska kokkalandsliðið hlaut gull fyrir frammistöðu sína á fyrsta keppnisdegi HM í matreiðslu í Lúxemborg á laugardaginn. Ljósmynd/Mummi Lú

Gullfoss, Geysir og Hekla úr jarðsveppum

Ljóst er að íslenskir matreiðslumeistarar hafa lengi látið að sér kveða á alþjóðlegum vettvangi.

Árið 1980 unnu Haukur Hermannsson, Gísli Thoroddsen og Kristján Danielsson silfur í norrænni matreiðslukeppni í Kaupmannahöfn.

Eitt sýningarfatanna var Íslandskort úr fiskfarsi. Útskornir jarðsveppir táknuðu Gullfoss, Geysi og Heklu. Á öðru fati voru sviðasulta, hrútspungar, hangikjöt og fjallagrös í nýstárlegri framsetningu.

Gestir fengu jafnframt að kaupa heitu réttina: sítrónumarineraðan lambahrygg og djúpsteiktan skötusel. Þeir seldust upp á einum og hálfum tíma.

Lundi vakti athygli dómaranna

Tveimur árum áður, árið 1978, mættu Sigurvin Gunnarsson, Gísli Thoroddsen og Hilmar B. Jónsson til keppni í Bella Center í Kaupmannahöfn. Þeir skipuðu fyrsta íslenska kokkalandsliðið samkvæmt samantekt Veitingageirans.

Á matseðlinum voru meðal annars léttreykt lambalæri og steiktur heilagfiskur. Liðið fékk gull fyrir heita matinn og sérstaka viðurkenningu fyrir besta kalda fatið á sýningunni, þar sem lundi var í aðalhlutverki.

Í heildarkeppninni varð Ísland í fjórða sæti.

Komu heim með súputarínu

Upphaf sögunnar í samantektinni er þó rakið til ársins 1974. Þá héldu Stefán Hjaltested og Birgir Pálsson til Þrándheims og kepptu fyrir hönd Klúbbs matreiðslumeistara á sjávarútvegssýningu.

Þeir komu heim með viðurkenningu fyrir besta veitingahúsaréttinn og súputarínu að verðlaunum. Samkvæmt samantektinni hefur nákvæmt heiti keppninnar ekki varðveist í opinberum skjölum.

Milli súputarínunnar í Þrándheimi og verðlaunapallsins í Stuttgart liggja fimmtíu ár af íslenskri keppnismatreiðslu. Nú gefst íslenska liðinu enn eitt tækifæri til að bæta nýjum kafla við þá sögu. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu á Facebook-síðu kokkalandsliðsins á morgun.

Veitingageirinn

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab