Gossip Girl-bygging sögufrægt hótel
Það er ómissandi að skoða þekkta staði úr kvikmyndum og sjónvarpsþáttum þegar New York-borg er heimsótt. Hótelið Lotte New York Palace Hotel er eitt þeirra en það þjónaði heimili Serenu van der Woodsen í þáttunum Gossip Girl.
Blake Lively rifjaði upp gamla tíma og heimsótti hótelið á dögunum. Hún birti síðan mynd af sér á Instagram og lét fylgja með að enginn staður jafnaðist á við heimili manns. Stjarnan var brosandi út að eyrum á myndinni. Hún var í rifnum gallabuxum og dökkbláum jakka og sást strjúka í gegnum hárið.
Lúxushótel
Hótelið er staðsett á Madison Avenue í Midtown á Manhattan. Þegar þættirnir voru teknir upp hét hótelið einfaldlega New York Palace Hotel eða var kallað Palace. Árið 2015 keypti Lotte Hotels & Resorts samsteypan hótelið og bætti nafninu Lotte fyrir framan. Byggingin á rætur að rekja til 1882 og var þá glæsilegt herrasetur í einkaeigu. Nú býr það yfir ljóma gömlu New York en býr á sama tíma yfir nútíma lúxus. Hótelið er með 900 herbergjum og svítum og er ekki óeðlilegt að greiða í kringum 90 þúsund fyrir nótt á hótelinu.
Lotte New York Palace Hotel er gamalt hús í grunninn en er nú stórt hótel. Ljósmynd/Lotte New York Palace Hotel
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



