Meira en 700 þúsund rússneskir hermenn hafi fallið

Rúmlega 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið.

Rúmlega 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið. AFP

Meira en 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið í stríðinu í Úkraínu frá því að allsherjarinnrás Rússa hófst í febrúar 2022.

Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar rússnesku óháðu fjölmiðlanna Meduza og Mediazona, sem byggist meðal annars á gögnum sem tölvuþrjótar komust yfir úr rússneska hagstofukerfinu. Bandaríska dagblaðið New York Times greinir frá niðurstöðunum.

Nýja matið var birt í dag, mánudaginn 23. nóvember, og bendir til þess að mannfall rússneska hersins sé töluvert meira en fyrri útreikningar sömu fjölmiðla höfðu gefið til kynna.

Fjölda saknað 

Samkvæmt umfjöllun The New York Times sýna gögn úr rússneska stjórnkerfinu að dauðsföll að minnsta kosti 490 þúsund hermanna höfðu verið skráð í lok september síðastliðins.

Fjöldinn er þó talinn mun meiri vegna þess hversu langur tími getur liðið frá því að hermaður fellur þar til andlát hans er formlega skráð. Þá er fjöldi hermanna enn talinn saknað, þótt líkur séu á að þeir hafi fallið.

Þegar tekið er tillit til þessara þátta telja rannsakendur að meira en 700 þúsund rússneskir hermenn hafi látið lífið í stríðinu.

Byggja á gögnum sem tölvuþrjótar öfluðu

Rannsóknin byggist á gögnum sem tölvuþrjótahóparnir Cyber Partisans of Belarus og Silent Crow komust yfir úr kerfum rússnesku hagstofunnar Rosstat.

Gögnin voru afhent fjölmiðlum á undanförnum vikum og veittu Meduza og Mediazona aðgang að upplýsingum sem áður höfðu ekki verið tiltækar við mat á mannfalli rússneska hersins.

Fjölmiðlarnir hafa um árabil reynt að áætla fjölda fallinna rússneskra hermanna, meðal annars með rannsóknum á opinberum dánarskrám og erfðamálaskrám.

Nýju gögnin gerðu þeim kleift að bera fyrri niðurstöður saman við upplýsingar úr rússneska stjórnkerfinu og meta betur hversu mörg dauðsföll hafa enn ekki verið skráð.

Í ítarlegri umfjöllun Meduza kemur fram að samkvæmt nýja matinu hafi um 530 þúsund rússneskir hermenn verið fallnir í árslok 2025. Talan hafi síðan hækkað í um 720 þúsund þegar komið var fram á haustið 2026.

Rannsakendurnir leggja þó áherslu á að veruleg óvissa sé enn um nýjustu tölurnar, einkum vegna mannfalls á yfirstandandi ári.

Erfitt að sannreyna mannfallið

The New York Times tekur fram að blaðið hafi ekki sjálfstætt staðfest gögnin eða tölfræðilega úrvinnslu þeirra.

Nákvæmar upplýsingar um mannfall hafa verið af skornum skammti frá upphafi innrásarinnar. Rússnesk stjórnvöld hafa ekki birt reglulegar og ítarlegar upplýsingar um fjölda fallinna hermanna.

Nýja matið nær aðeins til þeirra sem taldir eru hafa látið lífið en ekki til særðra hermanna.

Mun meiri óvissa ríkir um mannfall Úkraínumanna. Bandaríska hugveitan Center for Strategic and International Studies, CSIS, hafði áður áætlað að um 150 þúsund úkraínskir hermenn hefðu fallið fram í júní á þessu ári.

Nær fimm ár eru síðan stríðið hófst. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab