Vill heimila upptöku verðmæta án sakfellingar

Ef ákæruvaldið krefðist upptöku án þess að höfða sakamál tæki dómstóll ákvörðun með úrskurði. Lögregla þyrfti sem fyrr að hafa vitneskju eða grun um að refsivert brot hefði verið framið til að hefja sakamálarannsókn. Grunur um að eignir kynnu að sæta upptöku nægði þar einn og sér ekki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra leggur til að dómstólar geti gert verðmæti upptæk þótt enginn hafi verið sakfelldur fyrir brotið sem þau eru talin tengjast.

Heimildin tæki til verðmæta sem ætla má að séu ávinningur af refsiverðri háttsemi eða standi í beinum tengslum við hana. Frumvarp ráðherrans um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi var birt á vef Alþingis í dag.

Frumvarpið var afgreitt úr ríkisstjórn 13. nóvember. Markmiðið með rýmri upptökuheimild er að svipta brotahópa fjárhagslegum ávinningi af starfsemi sinni, meðal annars þegar erfitt er að rekja verðmæti til tiltekins brots.

Ákæruvaldið bæri áfram sönnunarbyrðina

Dómstóll legði heildstætt mat á uppruna verðmætanna og tengsl þeirra við refsiverða háttsemi. Samkvæmt greinargerðinni yrðu sönnunarkröfurnar vægari en við sakfellingu í sakamáli.

Ef byggt væri á ólögmætum uppruna verðmætanna þyrfti dómstóllinn að telja hann mun líklegri en lögmætan uppruna. Við matið mætti meðal annars líta til þess hvort verðmæti eignanna samrýmdist tekjum og fjárhagsstöðu eigandans. Eigandinn fengi færi á að leggja fram skýringar og gögn.

Ef ákæruvaldið krefðist upptöku án þess að höfða sakamál tæki dómstóll ákvörðun með úrskurði. Lögregla þyrfti sem fyrr að hafa vitneskju eða grun um að refsivert brot hefði verið framið til að hefja sakamálarannsókn. Grunur um að eignir kynnu að sæta upptöku nægði þar einn og sér ekki. 

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Karítas

Heimildin gæti náð til gjafa

Sérstök skilyrði giltu ef verðmætin hefðu verið gefin eða eignarhaldi eða réttindum yfir þeim verið breytt með öðrum hætti. Þá mætti aðeins gera þau upptæk ef eigandi eða rétthafi hefði vitað um tengsl þeirra við refsiverða háttsemi eða sýnt af sér stórfellt gáleysi að því leyti.

Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að í stað eignarinnar sjálfrar megi gera upptæka fjárhæð sem svarar til andvirðis hennar að hluta eða öllu leyti. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab