Stóra fjársvikamálið: Ástríður játaði sök – Ákæruvaldið fer fram á þriggja ára fangelsi
Fyrirtaka var í dag í Héraðsdómi Reykjaness í máli Ástríðar Kristínar Bjarnadóttur sem ákærð er fyrir fjársvik og þjófnaði gagnvart 13 karlmönnum á fimm ára tímabili, frá 2018 til 2023.
Mikið hefur verið fjallað um mál Ástríðar sem er um margt einstakt, ekki síst vegna þess hvað meint fjársvik hennar eru umfangsmikil. Hún sat í 12 vikna gæsluvarðhaldi vegna málsins sumarið 2023.
Sjá einnig: Risavaxin fjársvikaákæra: Önnur kona ákærð með Ástríði
Meint fjársvik Ástríðar nema samkvæmt ákæru um 40 milljónir króna. Þau beindust gegn 13 karlmönnum, þar af er hún sögð hafa svikið út samtals 12 milljónir af einum og sama manninum.
Hún er í fyrsta lagi sökuð um að hafa blekkt mennina til að lána sér fé og vakið þeim rangar hugmyndir um að hún væri fær um að endurgreiða. Í öðru lagi er hún sökuð um að hafa með sviksamlegum hætti komist yfir rafræn skilríki mannanna og þannig fengið aðgang að netbönkum þeirra, þaðan sem hún millifærði fé yfir á eigin reikninga. Hún er ennfremur sökuðu um að hafa stofnað til lántöku í nafni mannanna og millfært lánsfjárhæðirnar inn á eigin reikninga.
Sýndi iðrun
Ástríður játaði sök í fyrirtökunni í dag. Ákæruvaldið krefst þriggja ára fangelsis yfir henni en verjandi hennar, Snorri Sturluson, krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Í fyrirtökunni sýndi Ástríður mikla iðrun og bað brotaþola sína afsökunar. Kom fram að hún hefur leitað sér lækninga við sjúklegri spilafíkn sinni og var m.a. í langri meðferð við spilafíkn inni á Vogi.
Játningin leiðir til þess að engin aðalmeðferð verður haldin í málinu en þess í stað ákvarðar dómari Ástríði refsingu. Búast má við að dómurinn falli öðru hvoru megin við áramót.
Þess má geta að sextug kona, sem einnig er ákærð í málinu, fyrir peningaþvætti, en hluti af fjármununum mannanna runnu inn á reikninga hennar, neitar sök. Verður því réttað í máli hennar en ekki liggur fyrir hvenær.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗