Íslendingarnir toppuðu sig í Skandinavíu
Íslenskir skíðagöngumenn náðu góðum árangri á FIS-mótum í Svíþjóð og Noregi um helgina, 20.–22. nóvember.
Einar Árni Gíslason náði sínum bestu FIS-punktum á ferlinum í Bruksvallarna í Svíþjóð, Fróði Hymer átti sína bestu göngu með frjálsri aðferð til þessa í Beitostölen í Noregi og Ástmar Helgi Kristinsson bætti sinn besta árangur í sprettgöngu.
Einar Árni, sem keppir fyrir SKA og er í A-landsliði Íslands, tók þátt í þriggja daga móti í Bruksvallarna. Bestum árangri náði hann á sunnudag þegar keppt var í 10 km göngu með frjálsri aðferð. Hann hafnaði í 70. sæti á tímanum 25:25,8 mínútum og fékk 111,29 FIS-punkta, sem er hans besti árangur á ferlinum.
Einar Árni keppti einnig í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð á laugardag og varð þar í 86. sæti af 166 keppendum. Í sprettgöngu með hefðbundinni aðferð á föstudag hafnaði hann í 118. sæti af 136 keppendum.
Ævar Freyr Valbjörnsson tók einnig þátt í mótinu í Bruksvallarna. Hann hafnaði í 123. sæti í sprettgöngunni, 130. sæti í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð og 158. sæti í 10 km göngu með frjálsri aðferð.
Dagur Benediktsson úr SFÍ, sem einnig er í A-landsliðinu, var skráður til keppni en varð að draga sig úr keppni vegna veikinda.
Fróði með besta árangur ferilsins
Fróði Hymer úr Ulli og Ástmar Helgi Kristinsson úr SFÍ, sem báðir eru í B-landsliði Íslands, kepptu á FIS-móti í Beitostölen í Noregi.
Fróði átti afar góða helgi. Á föstudag varð hann í 70. sæti af 162 keppendum í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð og náði þar sínum besta árangri í langan tíma.
Á sunnudag fylgdi hann því eftir með sinni bestu göngu á ferlinum með frjálsri aðferð. Þá var keppt í 15 km göngu með einstaklingsræsingu og hafnaði Fróði í 57. sæti á tímanum 34:40,6 mínútum. Hann fékk 99,14 FIS-punkta fyrir árangurinn.
Ástmar Helgi bætti sinn besta árangur
Ástmar Helgi náði einnig góðum árangri í Beitostölen. Á laugardag keppti hann í 1,3 km sprettgöngu með hefðbundinni aðferð og hafnaði í 89. sæti af 113 keppendum.
Hann fékk 188,32 FIS-punkta og bætti þar með sinn besta árangur í greininni til þessa, en fyrra met hans var 210,41 punktur.
Fróði varð í 88. sæti í sömu keppni. Á föstudag hafði Ástmar Helgi hafnað í 130. sæti í 10 km göngu með hefðbundinni aðferð.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗