Bayern gæti skellt sér á markaðinn vegna meiðsla Kane

Bayern Munchen hefur bæst í hóp félaga sem hafa áhuga á Nicolo Tresoldi, framherja Club Brugge, eftir alvarleg meiðsli Harry Kane.

Gazzetta dello Sport segir frá þessu en Tresoldi hefur skorað 15 mörk í 18 leikjum á tímabilinu, þar af fimm í fyrstu fjórum leikjum sínum í Meistaradeildinni.

Tresoldi er 22 ára og hefur einnig vakið áhuga fleiri stórliða. Club Brugge vill rúmlega 50 milljónir punda fyrir hann.

Kane gekkst undir aðgerð á ökkla um helgina og verður frá keppni næstu mánuði. Bayern gæti því freistað þess að fá Tresoldi þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Eli Junior Kroupi hjá Bournemouth og Paris Brunner hjá Monaco eru einnig sagðir koma til greina.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab