Páll Ásgeir hneykslaður á héraðsdómi fyrir að neita að birta dóm yfir barnaperra - „Þessi niðurstaða getur ekki staðist“
Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. nóvember 2026 19:30
Páll Ásgeir segir dómstólinn sýna svívirðilega framkomu gagnvart þolendum barnaníðs.
Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og leiðsögumaður, segir dómstóla sína svívirðilega framkomu gagnvart þolendum barnaníðs með því að neita að birta dóm yfir dæmdum kynferðisbrotamanni.
„Þessi niðurstaða getur ekki staðist. Í réttarríki er ekki hægt að láta duttlunga starfsmanna dómstóla ráða því hverjum er hlíft og hverjum ekki,“ segir Páll Ásgeir í færslu á samfélagsmiðlum og vísar í frétt RÚV um að dómur yfir dæmdum kynferðisbrotamanni verði ekki birtur.
Það er að Héraðsdómur Reykjavíkur hefur neitað að birta eða afhenda þáttargerðarfólki Kveiks afrit af dómi yfir manni sem var dæmdur fyrir vörslu barnaníðsefnis.
„Sérstaklega þungbær"
Samkvæmt reglum um dómstóla eiga þeir að birta dóma innan fimm virkra daga frá uppkvaðningu en dómstóllinn neitaði að afhenda dóminn á grundvelli undanþáguheimildar vegna sérstakra aðstæðna. Jafn vel þó hann væri nafnhreinsaður og með afmáðar persónugreinanlegar upplýsingar.
Sagði í rökstuðningi dómstjóra að birting dómsins væri „sérstaklega þungbær og umfram það sem almennt má búast við.“
Maðurinn hafði í vörslum sínum 53 ljósmyndir og 7 myndbönd sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Játaði hann brot sitt.
„Þetta er svívirðileg framkoma við alla þolendur glæpa af þessu tagi,“ segir Páll Ásgeir. „Við fylgjumst með þessu máli og treystum því að Kveikur fái dóminn afhentan. Það má vel vera að niðurstaðan sé óþægileg en þarna er plástur sem samfélagið verður að rífa af.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗