Ungstirnið fær nýjan samning eftir frábæra helgi
Hinn ungi Luca Williams-Barnett er að skrifa undir langtímasamning við enska knattspyrnufélagið Tottenham.
Sky Sports segir frá en Williams-Barnet, sem er aðeins 18 ára gamall, var allt í öllu í 2:0-sigri Tottenham á Ipswich í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.
Hann skoraði fyrra mark liðsins og lagði upp það seinna á Dominic Solanke.
Williams-Barnett kom til Tottenham frá uppeldisfélagi sínu, Luton, þegar hann var tíu ára gamall og hefur vakið mikla athygli meðal stuðningsmanna Tottenham með frábærri frammistöðu með unglingaliðum félagsins.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗