Trump ræddi við stjórnina um að fá Huang aftur inn

Jensen Huang og Donald Trump.

Jensen Huang og Donald Trump. AFP/Kent Nishimura

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa rætt beint og óbeint við stjórnarmenn Nvidia um að fá Jensen Huang aftur inn sem forstjóra fyrirtækisins. Þetta sagði forsetinn við miðilinn CNBC í dag.

New York Times segir Trump hafa látið JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna, miðla málum með Huang og stjórn Nvidia um helgina sem hefur um 42.000 starfsmenn á sínum snærum.

Trump sagði Huang vera „mikinn föðurlandsvin og þjóðargersemi“ í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag eftir að tilkynnt var að Huang yrði aftur forstjóri Nvidia. Hann hrökklaðist úr hlutverkinu fyrir um tveimur vikum eftir að upp komst um framhjáhald hans.

Huang hélt við kínverska viðskiptakonu, Alice Huang, sem bandarísk stjórnvöld telja vera njósnara á vegum kínverskra stjórnvalda. Hún starfaði fyrir kínverska tæknifyrirtækið Megaspeed. Í kjölfarið komst upp að Huang hefði átt í fleiri framhjáhöldum, að minnsta kosti tveimur alls.

Stjórn Nvidia gaf út tilkynningu í dag þar sem hún segir alla stjórnarmeðlimi sannfærða um að Huang ætti að snúa aftur „eftir innlegg frá æðstu ráðamönnum bandarísku ríkisstjórnarinnar“. Hlutabréf fyrirtækisins hafa risið í kjölfar endurráðningar Huangs.

Hlutabréfin í Nvidia hafa farið upp á við síðan Huang varð forstjóri á ný í dag. AFP/Angela Weiss

Trump betri en enginn

Íhlutun Trumps og endurráðningin sýna sterka stöðu Huangs þrátt fyrir hneykslið og vald forsetans í tæknigeiranum. Huang er einn af stofnendum Nvidia sem er með verðmætustu fyrirtækjum Bandaríkjanna.

Stuðningur forsetans hefur án efa haft mikið að segja um endurráðningu Huangs. Trump hefur talað fyrir henni frá því að hann sagði af sér.

Huang hafði fyrir fáeinum dögum gefið út opinberlega að hann myndi taka við starfinu, sem hann hrökklaðist úr fyrir um tveimur vikum, ef stjórnin myndi bjóða honum það aftur. Hún gerði það hins vegar ekki fyrr en nú.

Trump hefur gríðarmikla trú á gervigreind, sem hann kallar nú ofurgreind (e. Super Intelligence í stað Artificial Intelligence), og hefur myndað náin tengsl við forstjóra gervigreindarfyrirtækja á borð við OpenAI, Meta, Grok, Palantir, Anthropic og Nvidia.

Nvidia sérhæfir sig meðal annars í framleiðslu og sölu gervigreindarörflagna sem keyra áfram gagnaver. Sala þeirra hefur verið bönnuð til Kína.

Höfuðstöðvar Nvidia í Santa Clara í útjaðri San Jose í Kaliforníu. AFP/Benjamin Fanjoy

Erfitt að leysa Huang af hólmi

Áður en hneykslið kom upp þótti Huang einstaklega fær forstjóri og virðist þykja enn í dag eins og ráðningin ber með sér.

Stjórnunarháttum hans hefur verið lýst á þann veg að um 60 millistjórnendur svari beint til hans. Það er mun meira en gengur og gerist í Bandaríkjunum en The Irish Times fjallaði um málið og sagði 13 vera algenga tölu í því samhengi. Talan er miðuð við könnun Gallup.

Miðillinn segir Huang ekki hafa hitt undirmenn sína á einkafundum dagsdaglega heldur ávarpað þá alla í einu og þar með komið vandamálum á framfæri við alla í einu.

Huang þekkir fyrirtækið vel en eins og áður segir stofnaði hann fyrirtækið á veitingastað skyndibitakeðjunnar Denny's ásamt tveimur öðrum stofnendum í San Jose-borg árið 1992.

Forstjórinn er metnaðarfullur eins og dæmin sýna. Hann er sagður hafa sýnt tennurnar með því að ganga á starfsfólk fyrir framan kollega þeirra. Um leið hefur hann líka verið þekktur fyrir almennilegheit.

New York Times

NBC

Irish Times

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab