Klóra sér í hausnum yfir nýjum forstjóra ÁTVR

ÁTVR hóf að bjóða upp á heimsendingarþjónustu í dag. Á samsettu myndinni eru Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Hallur

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, telur að heimsendingarþjónusta, sem ÁTVR tilkynnti fyrr í dag að væri hafin, sé til marks um yfirgengilega hræsni og tvískinnung stjórnmálamanna og embættismanna í afstöðu þeirra til áfengislöggjafarinnar.

Að hans mati verður ekki annað séð en að ÁTVR auki enn á ný aðgengi að áfengi á sama tíma og stjórnmálamenn og Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR segja lýðheilsusjónarmið ráða áfengislöggjöf á Íslandi. Þorgerður Kristín tók við stjórn ríkisfyrirtækisins í sumar.

Eykur aðgengi en talar um takmarkað aðgengi

„Við höfum satt best að segja verið að klóra okkur í kollinum yfir yfirlýsingum nýs forstjóra ÁTVR. Þegar í ljós kom að sala áfengis í ÁTVR hefði minnkað taldi hún það merki um að stefna ríkisins um að takmarka aðgengi að áfengi væri að virka. Nú býður ríkið hins vegar upp á heimsendingu frá netverslun sinni og þá veltir maður því fyrir sér hvort það sé samrýmanlegt stefnu ríkisins um takmarkað aðgengi,“ segir Ólafur.

Hann bendir á að einkaaðilar hafi verið settir á sakamannabekk fyrir að gera hið sama, það er að selja áfengi í netverslun.

Tvískinnungur og hræsni

„Það er bara ekki heil brú í þessu. Það er yfirgengilegur tvískinnungur og hræsni í því hvernig stjórnmálamenn umgangast áfengislöggjöfina. Það er eins og meirihluti þeirra sem sitja á Alþingi haldi að hægt sé að halda í einhvern veruleika sem var fyrir 60 árum, þegar núverandi áfengislöggjöf var lögð í grunninn. Þannig er horft fram hjá þróun í verslun, viðskiptum og tækni. Fyrir vikið missir löggjafinn af tækifæri til að hafa áhrif á þróunina og hún fer fram án þess að stjórnmálamenn setji henni skynsamlega umgjörð,“ segir Ólafur.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab