Gunnar Smári sagði Runólfi hvað læknir sagði við hann í sumar: „Það er ekki viðeigandi“
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala segir að Íslendingum hafi mistekist að þróa biðlista eftir heilbrigðisþjónustu, þeir séu í dag óáreiðanlegir, á biðlistum hjá landlækni geti jafnvel verið látið fólk. „Þessu verðum við að koma í horf og við höfum verið að reyna á spítalanum að þróa samhæft kerfi en þetta þarf að gera á landsvísu,“ segir Runólfur í viðtali í þættinum Synir Egils. Í þættinum bar Gunnar Smári Egilsson, annar þáttastjórnandi, undir Runólf hvað læknar sögðu við hann í sumar.
Runólfur segir að með því að rýna í tölurnar aftur í tímann þá sjáist að það hafi verið fjárhagslegt aðhald með spítalanum alveg frá sameiningu Landspítala og Borgarspítalans fyrir aldarfjórðungi, samlegðaráhrifin af þeirri sameiningu hafi aldrei komið fram. „Það eru þrjár ástæður fyrir því að Landspítali hefur ekki getað aukið mjög sína þjónustu. Ein ástæðan er fjárhagslegs eðlis. Önnur er aðstaða, það hefur tekið alltof langan tíma þessi uppbygging sem að þurfti. Og í þriðja lagi er það mannekla,“ segir Runólfur. „Ef við horfum á fjármögnunina þá er það nú svo að á föstu verðlagi frá 2008, og ég fullyrði að árin á undan hafi líka verið aðhald, þá hafa fjárveitingar ekki aukist nema um 10-11%. Það er ekki meira, 0,5% á ári. Á sama tíma, á þessum aldarfjórðung, hefur fólki fjölgað hérna um 40%. Öldruðum, fólk 80 ára og eldri, sá fjöldi hefur meira en tvöfaldast.“
Hugsanlegt að þrengt verði svo að Landspítala að hann hætti að vera öflugur
Það þurfi sterka stýringu á þjónustunni heilt yfir. Runólfur tekur undir þá lýsingu að spítalinn hafi ekki þróast nógu hratt og á sama tíma fjölgi einkastofum, og það á tilviljanakenndan hátt, á kostnað skattgreiðenda.
Gunnar Smári bar undir hann hvort það væri vandi að læknar störfuðu að hluta til á Landspítala en þeirra helsti vinnustaður væri þeirra einkarekna stofa. „Ef við horfum á lækna þá erum við með hærra hlutfall sérfræðilækna sem stunda eigin þjónustu á stofu jafnhliða.“
Nefndi Gunnar Smári dæmi um tvo lækna, annar sem starfi í hundrað prósent starfi á Landspítala á meðan hinn starfar utan spítalans með þrefalt hærri laun. „Ef við tökum sem dæmi augnlæknana sem eru í lágum starfshlutföllum á Landspítala, þeir vinna á eigin stofum úti í bæ og gera aðgerðir þar líka. Við höfum ekki getað aukið framboð á þjónustu, til dæmis augasteinsaðgerðir. Ef að við hefðum augnlæknana í fullu starfi á Landspítala þá þyrftum við að hafa aðstöðu fyrir þá, við erum ekki með hana eins og er,“ segir Runólfur. „Ef við horfum til annarra háskólasjúkrahúsa þá er sérhæfð þjónusta sem er að hluta til sinnt utan spítalans, getur alveg verið þar innan veggja, þá ertu bara með fleiri lækna við störf og finnur þeim fleiri verkefni. Ef við þrengjum of mikið verkefni Landspítala, þú verður að vera með ákveðinn fjölda til að geta meðal annars sinnt vaktþjónustu, þá verðum við að hafa fyrir þá verkefni. Ef þeir hafa ekki verkefni, en þú verður að hafa þá, þá er það ekki hagkvæmt fyrir samfélagið sem borgar brúsann.“
Runólfur segir að það sé hugsanlegt að Landspítalinn verði veiktur það mikið að hann hætti að vera öflugur. „Ef við horfum á myndgreiningarþjónustu sem dæmi, hún hefur eflst mjög mikið fyrir utan spítalann og fyrir bragðið hefur hún veikst á spítalanum,“ segir hann. Um sé að ræða þjónustu sem spítalinn verði að hafa. „Þetta samspil á milli opinberrar þjónustu, sérstaklega stórs spítala, og einkarekinnar þjónustu, er viðkvæmt. Þessu er ekki stýrt. Ekki nægjanlega. Það eru allir með markmið en það þarf að stýra þessu frá degi til dags liggur við, til að tryggja viðeigandi forgangsröðun, jafnræði að þjónustu og að tryggja að þjónustuveitandi geti sinnt sínu hlutverki.“
Runólfur var þá spurður út í það þegar læknar sem starfa á spítalanum vísa sjúklingum þaðan og á stofuna sína úti í bæ. „Við reynum að sporna gegn því,“ segir Runólfur. Gunnar Smári sagði þá forstjóranum að tveir læknar hafi gert það við hann í sumar. Því svaraði Runólfur: „Þetta er ekki viðeigandi.“
Hér má horfa á viðtalið í heild:
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗