Tekin inn á heimili ókunnugra eftir bilun í Bosníu

Guðný Matthíasdóttir og Róbert Halbergsson hafa síðastliðin fjögur ár búið í húsbíl ásamt tveimur barna sinna og ferðast víða um Evrópu. Á ferðalaginu hafa þau kynnst ólíkum menningarheimum, lent í ýmsum ævintýrum og upplifað einstaka gestrisni, meðal annars þegar húsbíllinn bilaði í Bosníu og ókunnug fjölskylda bauð þeim öllum að gista á heimili sínu.

Þau segja ferðalagið meðal annars hafa kennt þeim og börnunum að treysta fólki, enda sé flest fólk gott, vera jákvæð og horfa á heiminn með opnum huga.

Sérstaklega hafi lönd Austur-Evrópu komið þeim á óvart, sem hafi orðið til þess að þau endurskoðuðu eigin hugmyndir og fordóma.

„Við vorum sjálf með ákveðna fordóma gagnvart Austur-Evrópu. Ég áttaði mig ekki einu sinni á því að við værum með fordóma,“ segir Guðný, en hún er gestur í Dagmálum í dag ásamt Róberti, manni sínum.

„En svo þurftum við bara að éta það ofan í okkur og bara gott á okkur,“ bætir hún við.

Fjölskyldan er mjög samrýnd.

Fjölskyldan er mjög samrýnd. Ljósmynd/Aðsend

Aldrei verið jafn örugg og í Póllandi

Fjölskyldan hefur heimsótt 31 land á ferðalaginu og segja þau hjónin Miðjarðarhafslöndin í miklu uppáhaldi.

„Mér finnst Miðjarðarhafið æðislegt, Ítalía æðisleg og Grikkland geggjað. En svo hefur Austur-Evrópa komið rosalega mikið á óvart. Bæði menningin og fólkið þar er bara dásamlegt,“ segir Róbert.

Hann segir þau hafa þurft að leita á verkstæði með húsbílinn á ýmsum stöðum á ferðalaginu, enda sé hann kominn til ára sinna, en alls staðar hafi þeim verið tekið vel.

Guðný tekur undir þetta og segir þau meðal annars hafa dvalið mikið í Póllandi.

„Ég hef hvergi verið eins örugg og í Póllandi. Bara dásamlegt fólk,“ segir hún.

Þau hafa heimsótt 31 land á ferðalaginu.

Þau hafa heimsótt 31 land á ferðalaginu. Ljósmynd/Aðsend

Ættingjar og vinir höfðu áhyggjur

Þau hafa lent í fjölda ævintýra en eitt það eftirminnilegasta hingað til er líklega þegar húsbíllinn bilaði í Bosníu og þau þurftu aðstoð heimamanna.

Aðstæður voru þannig að ekki var hægt að sofa í bílnum þar sem honum hafði verið lagt í miklum halla. Ókunnugt fólk bauð því allri fjölskyldunni að gista.

„Þá vorum við bara tekin inn á heimili og okkur leyft að gista á meðan verið var að gera við bílinn. Samt skildum við ekkert hvort annað, við töluðum bara saman í gegnum Google Translate,“ segir Róbert.

Guðný viðurkennir að það hafi verið sérstök tilfinning að vera skyndilega komin inn á heimili ókunnugra í framandi landi.

„Það var rosalega skrýtið,“ segir hún.

Hún rifjar upp að ættingjar og vinir heima á Íslandi hafi haft töluverðar áhyggjur af þeim.

„Ég man að við töluðum við fólkið okkar heima og þá voru allir bara: Passið ykkur og leyfið mér að heyra í ykkur reglulega. Allir voða stressaðir,“ segir Guðný.

Áhyggjurnar reyndust þó óþarfar.

„En það var ekkert á bak við þetta nema bara gestrisni og almennilegheit,“ segir hún.

„Það var bara geggjað,“ bætir Róbert við.

Upplifðu sig eins og loddara í Mónakó

Ferðalagið hefur einnig leitt fjölskylduna á staði sem hún ætlaði í raun ekki að heimsækja. Þannig enduðu þau í Mónakó fyrir hreina tilviljun.

„Við vorum á einhverjum fjallvegi og sáum skilti sem á stóð Mónakó. Við hugsuðum bara: Já, já, prófum þetta,“ segir Róbert og hlær.

Upplifunin var þó nokkuð sérstök enda húsbíll fjölskyldunnar ekki alveg í sama stíl og lúxusbílarnir sem einkenna götur furstadæmisins.

„Ég held að ég hafi aldrei fundið fyrir eins mikilli loddaralíðan og þar. Við vorum á okkar gamla húsbíl og það voru bara einhverjir sportbílar og allir með Gucci-poka og eitthvað,“ segir Guðný kímin.

Þau ætluðu að leggja bílnum og skoða sig um en það reyndist hægara sagt en gert.

„Við ætluðum að leggja einhvers staðar en það var hvergi hægt að koma bílnum að. Þannig að við keyrðum bara í gegn og upp aftur,“ segir Róbert.

Þau geta því að minnsta kosti sagst hafa komið til Mónakó, þótt heimsóknin hafi verið í styttra lagi.

Guðný og Róbert segjast hafa þurft að éta ofan í sig eigin fordóma. Ljósmynd/Aðsend

„Langflest fólk er frábært“

Guðný segir þó að það dýrmætasta við ferðalagið sé hvorki fjöldi landa sem fjölskyldan hefur heimsótt né þeir staðir sem hún hefur séð, heldur fólkið sem orðið hefur á vegi hennar.

„Ég held að það sem við höfum mest lært af þessu og mest kennt börnunum okkar sé að það er ofboðslega mikið af góðu fólki í heiminum. Örugglega rúmlega 99% eru bara frábært fólk sem er yndislegt á alla vegu,“ segir hún.

Hún segir mikilvægt að börnin læri að dæma ekki fólk út frá uppruna, trúarbrögðum eða útliti.

„Það er til fólk sem er ekki gott fólk, en það ræðst ekkert af húðlit, trúarbrögðum eða uppruna. Langflest fólk er frábært. Ég held að það sé það sem við höfum kennt þeim mest.“

Róbert tekur undir orð hennar og segir ferðalagið ekki síður hafa breytt þeirra eigin sýn á heiminn.

„Og við höfum lært sjálf líka. Það skiptir engu máli hvaða menningu fólk tilheyrir eða hvaða húðlit það hefur. Maður er nánast alltaf velkominn,“ segir hann.

Fjölskyldan er stödd á Íslandi núna en þau selja vörur sem þau útbúa sjálf á jólamörkuðum til að safna fyrir nýjum húsbíl. Þá rekur Róbert fyrirtækið PúHa-design, en undir því merki hanna þau og selja ýmis konar gjafavöru.

Hægt er að fylgjast með ævintýrum fjölskyldunnar á Instagram: https://www.instagram.com/jurovagninn/

Hér má nálgast þáttinn í heild sinni:

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab