Glódís Perla að komast í gang

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir.

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir. Ljósmynd/Alex Nicodim

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir lék sinn fyrsta deildarleik í mánuð þegar þýsku meistararnir í Bayern München unnu 1:0-sigur á Hoffenheim í þýsku Bundesligunni í fótbolta í München í kvöld.

Bayern er með fullt hús stiga, 33 stig, á toppi deildarinnar eftir sigurinn. Var þetta síðasti leikur liðsins fyrir landsleikjahlé, en þar mætir Ísland Portúgal í tveggja leikja einvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári.

Glódís hefur glímt við smávægileg meiðsli en var þó einnig í byrjunarliði Bayern gegn Austria Vín í síðustu viku. Leikurinn í kvöld var hins vegar sá fyrsti sem hún spilaði í deildinni í mánuð.

Glódís fór af velli á 74. mínútu en sigurmark Bayern skoraði hin spænska Edna Imade á áttundu mínútu.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab