HÍ og Keflavíkurflugvelli bárust sprengjuhótanir

Háskóla Íslands og Keflavíkurflugvelli bárust sprengjuhótanir í morgun.

Háskóla Íslands og Keflavíkurflugvelli bárust sprengjuhótanir í morgun. Samsett mynd

Háskóli Íslands og Keflavíkurflugvöllur eru á meðal þeirra sem bárust sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun.

Þetta staðfesta Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við mbl.is.

Líkt og greint var frá fyrr í dag bárust ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hér á landi slíkar hótanir. 

Höfðu ekki áhrif á daglegan rekstur

Silja Bára segir að lögreglu hafi verið gert viðvart. Hún hafi metið hótanirnar sem svo að þær yrðu ekki taldar trúanlegar.

Hið sama er að segja um Isavia. Lögreglu var gert viðvart en Guðjón vísar spurningum um hættumat alfarið á lögreglu.

Sprengjuhótanirnar höfðu engin áhrif á daglegan rekstur eða starfsemi Isavia að hans sögn.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab