United ætlar að áfrýja

Leny Yoro tekur Alexander Isak niður. Hann fékk svo rautt spjald í kjölfarið. AFP/Paul Ellis

Manchester United hefur tilkynnt enska knattspyrnusambandinu að félagið hyggist áfrýja rauða spjaldinu sem Leny Yoro fékk í 4:0 tapi liðsins gegn Liverpool á Anfield.

Yoro var rekinn af velli eftir aðeins átta mínútna leik fyrir að brjóta á Alexander Isak þegar Svíinn var á leið í átt að marki. Dómarinn mat atvikið sem brot sem kom í veg fyrir augljóst marktækifæri og sýndi Frakkanum beint rautt spjald.

Ákvörðunin vakti miklar umræður þar sem Isak virtist hafa misst stjórn á boltanum með snertingu sinni og hann stefndi í átt að markverði United.

Eitt af því sem dómarar þurfa að meta við slíkar ákvarðanir er hvort sóknarmaðurinn hafi verið líklegur til að halda boltanum eða ná stjórn á honum.

Skiptar skoðanir

Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri United, var ósáttur við rauða spjaldið og taldi að Isak hefði ekki verið með boltann á valdi sínu þegar brotið átti sér stað.

Kobbie Mainoo, miðjumaður United, gagnrýndi einnig ákvörðun dómarans og sagði hana hafa gert liðinu erfitt fyrir.

Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði United, var sömuleiðis þeirrar skoðunar að Isak hefði ekki náð boltanum áður en markvörðurinn Senne Lammens kæmist til hans.

Dermot Gallagher, fyrrverandi úrvalsdeildardómari, var hins vegar á öðru máli. Hann studdi ákvörðun dómarans í samtali við Sky Sports og taldi rétt að reka Yoro af velli.

„Ef maður horfir á atvikið frá sjónarhorni dómarans, var þetta þá brot? Það er fyrsta spurningin. Já. Var hann með boltann á valdi sínu? Miðað við þetta sjónarhorn, já.

Ég held að flestir hefðu búist við rauðu spjaldi. Það hefði komið á óvart í leiknum ef rauða spjaldið hefði ekki farið á loft.

Ég veit ekki hvort hann hefði náð boltanum á undan Lammens,“ sagði Gallagher.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab