Myndband: Sturluð uppákoma í Svíþjóð í gær - Eru brjálaðir og neituðu að þakka fyrir

Stuðningsmenn sænska liðsins Djurgarden fögnuðu þegar eigið lið klúðraði vítaspyrnu í 1-0 tapi gegn Sirius í sænsku úrvalsdeildinni í gær.

Kristian Lien skaut fram hjá úr vítaspyrnu á 11. mínútu og fögnuðu stuðningsmenn Djurgarden ákaft. Fögnuðurinn varð enn meiri þegar Sirius skoraði sigurmarkið síðar í leiknum.

Ástæðan er sú að Sirius berst um sænska meistaratitilinn við Hammarby, erkifjendur Djurgarden. Stuðningsmennirnir vildu því frekar sjá eigið lið tapa en að hjálpa Hammarby í titilbaráttunni.

Leikmenn Djurgarden voru allt annað en sáttir og neituðu að þakka stuðningsmönnum sínum fyrir leikinn.

„Ég veit satt að segja ekki fyrir hvað við eigum að þakka þeim í dag,“ sagði Jacob Rinne, markvörður liðsins.

Yesterday, Djurgarden fans celebrated after their own player missed a penalty.. Because it meant that their rivals Hammarby missed out on winning the league. Pettiness you absolutely love to see! 😂 https://t.co/zB9hlr5JxH

— Out of Context Football Manager (@nocontextfm1) November 23, 2026

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab