Verk Van Goghs selt fyrir metfé

"Châtaigniers en fleurs" eftir listamanninn fræga. AFP

Málverk eftir hollenska meistarann Vincent van Gogh, „Châtaigniers en fleurs“ eða „Blómstrandi kastaníutré“, var í fyrradag selt á uppboði hjá Sotheby's í New York fyrir metfé, 190,4 milljónir dollara eða jafnvirði um 23,7 milljarða íslenskra króna.

Mun það vera hæsta kaupverð á verki eftir málarann en fyrra met var slegið árið 2022, 117,2 milljónir dollara eða um 14,6 milljarður króna.

Verkið málaði Van Gogh árið 1890 og er það talið með merkari verkum listamannsins og eitt af hans síðustu verkum.

Málverkið var áður í eigu útgefandans Samuel Fischer og fjölskyldu hans en þau voru af gyðingaættum og seldu verkið árið 1936 á tímum ofsókna nasista gegn gyðingum.

Erfingjar Fischer gerðu athugasemdir við fyrirhugað uppboð og töldu að verkið hefði verið selt undir þrýstingi vegna ofsóknanna en rétt fyrir uppboðið náðist samkomulag milli erfingjanna og Blaquier-Arrieta-fjölskyldunnar, sem eignaðist verkið 1975. Ekki hefur verið upplýst um skilmála samkomulagsins.

AFP/Peter Parks

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab