Afskaplega mikilvægt að ýsan skuli sýna sig
Ýsan virðist nú vera að ganga á miðin austur af landinu og þykir það mikið gleðiefni að mati skipstjóra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síldarvinnslunni en þar segir: „Vestmannaeyjaskipin, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu bæði nánast fullfermi í Neskaupstað í gær. Það sem helst bar til tíðinda í veiðiferðinni að mati skipstjóranna var betra veður en að undanförnu og sú gleðilega staðreynd að ýsan virðist vera að ganga á miðin austur af landinu.“
„Það var gott veður allan tímann“
Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var ánægður með veiðiferðina en haft er eftir honum í tilkynningunni:
„Túrinn var þrír og hálfur sólarhringur og það var gott veður allan tímann, sem heyrir til tíðinda. Við fórum beint á Glettinganesflak og vorum þar allan tímann. Í þessum túr er ýsa um 40% af aflanum og það er nýtt og gleðilegt. Það verður að veiða fleira en þorsk og því er afskaplega mikilvægt að ýsan skuli sýna sig.“
Þá er haft eftir Jóni Valgeirssyni, skipstjóra á Bergey, að hann hafi einnig verið sáttur við túrinn.
„Við vorum á Glettinganesflakinu allan tímann og þar voru býsna mörg skip og heilmikill ágangur. Menn voru mjög ánægðir með veðrið. Veiðin þarna var mun skarpari en hún hefur verið og það skiptir miklu máli að nú loksins fékkst töluvert af ýsu, sem er afar jákvætt.“
Skipin héldu til veiða á ný strax að löndun lokinni en skipstjórunum til ama fer veðurspáin heldur versnandi næstu daga.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗