Ásdís Olsen selur krúttlegt einbýli við Elliðavatn
Ásdís Olsen á fallegt einbýlishús við Dimmuhvarf með sambýlismanni sínum Sindra Gunnarssyni. Samsett mynd
Ásdís Olsen, fjölmiðlakona og núvitundarkennari, og sambýlismaður hennar, Sindri Gunnarsson hafa sett fallegt einbýlishús sitt við Elliðavatn í Kópavogi á sölu. Húsið er 171 fermetrar og er ásett verð 169 milljónir.
Húsið virðist einna helst hafa staðið við Elliðavatn í 100 ár en svo er alls ekki þrátt fyrir stílinn. Húsið var flutt á nýjan grunn, stækkað og endurbyggt árið 2014 og stendur það á stórri náttúrulegri lóð á þessum einstaka stað á höfuðborgarsvæðinu. Falleg viðarinnrétting í eldhúsinu passar vel inn í eldhúsið sem er viðarklætt og málað í ljósum lit.
Það er nóg pláss í húsinu en fjögur svefnherbergi eru í húsinu og tvö baðherbergi.
Stofan er notaleg en þar má eflaust horfa út um gluggan allan daginn og vera í núinu. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Hræðist ekki flutninga
Ásdís hefur verið dugleg að koma auga á gullmola á fasteignamarkaðnum á undanförnum árum. Hún er kona sem lifir í núinu og hikar ekki við að stökkva á tækifærin þegar þau bjóðast. Árið 2021 sett hún íbúð á Óðinsgötu á sölu. Hún setti fjölskylduhúsið við Furugerði á sölu á vormánuðum árið 2024 en þar bjó hún meðal annars með dóttur sinni og fjölskyldu hennar.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



