Stýrir Eyjamönnum áfram
Alexander Linta verður áfram þjálfari karlaliðs ÍBV í fótbolta á næstu leiktíð en liðið féll úr Bestu deildinni í haust.
Þetta staðfesti Magnús Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV í samtali við Vísi í dag.
„Hann gerði þriggja ára samning þegar hann tók við síðasta haust og það hefur ekkert breyst í því. Linta verður áfram með liðið,“ sagði Magnús við Vísi.
Ljóst er að Linta mun þurfa nýjan aðstoðarþjálfari en Óskar Elías Zoega Óskarsson verður ekki áfram í því hlutverki.
Linta tók við liði ÍBV í upphafi árs eftir að Þorlákur Árnason sagði upp störfum í byrjun desember í fyrra.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗