Fannst nýja síðan „ömurleg“ og greip til sinna ráða

Freyr taldi sig geta gert betur en Veðurstofan og hefur fengið mjög jákvæð viðbrögð. Samsett mynd/Aðsend/Skjáskot

Freyr Helgason, fyrrverandi leiðsögumaður og mikill áhugamaður um veður, ákvað að taka málin í sínar hendur eftir að nýr vefur Veðurstofu Íslands fór í loftið. Honum leist svo illa á nýja vefinn að hann ákvað að útbúa sína eigin veðursíðu, vedurkort.com, sem hefur þegar fengið afar góðar viðtökur.

Freyr segir hugmyndina hafa kviknað þegar hann skoðaði nýjan vef Veðurstofunnar og áttaði sig á því að hann gæti sjálfur gert betur. Hann hafði áður þróað veðursmáforritið SkyRoad og gat nýtt þá vinnu til að koma nýju síðunni í loftið á skömmum tíma en það forrit er aðallega ætlað ferðamönnum hér á landi.

„Mér fannst hún ömurleg,“ segir Freyr í samtali við mbl.is um nýja vefsíðu Veðurstofunnar.

Spurður hvort hann hafi einfaldlega hugsað með sér að hann gæti gert betur svarar hann:

„Já, það er bara nákvæmlega það sem ég hugsaði.“

Spyr í hvað allir peningarnir fóru

Greint var frá því í síðustu viku að Veðurstofan hefði varið tæplega 460 milljónum króna í þróun og uppbyggingu nýs vefs stofnunarinnar frá því verkefnið hófst árið 2022.

Nýi vefurinn hefur fengið töluverða gagnrýni eftir að hann var settur í loftið og hafa fleiri fengið sömu hugmynd og Freyr, því að minnsta kosti tveir aðrir veðurvefir hafa litið dagsins ljós á síðustu dögum.

Freyr er gagnrýninn á þann tíma og fjármuni sem hafa farið í þróun nýs vefs Veðurstofunnar.

„Maður hugsar bara: Ókei, í hvað fór allur þessi peningur?“ segir hann.

Hann telur að ekki eigi að þurfa svo langan tíma til að þróa veðursíðu og bendir á að hann hafi sjálfur komið sér upp tæknilegum grunni fyrir slíka þjónustu fyrir meira en ári.

„Það tekur ekki svona langan tíma að búa til vefsíðu eða bakendann,“ segir Freyr.

Hann leggur þó áherslu á að hann hafi ekki þurft að byrja frá grunni þegar hann ákvað að setja nýju síðuna á laggirnar.

Viðbrögðin vægast sagt góð

Freyr er fyrst og fremst áhugamaður um veður en hann hefur ekki menntun á því sviði. Þá hefur hann nýtt sér gervigreind við hönnun og forritun síðunnar. Gervigreindin gerir honum kleift að vinna mun hraðar en ella en hún sér að stórum hluta um að skrifa forritunarkóðann.

„Þú þarft bara að geta lesið aðeins kóðann en hún er tvisvar sinnum fljótari að vinna heldur en nokkurn tímann nokkur forritari,“ segir Freyr.

Freyr segir viðbrögðin við nýju veðursíðunni hafa verið afar jákvæð og að margir telji hana aðgengilegri en nýja vef Veðurstofunnar.

„Þau hafa verið frekar góð, vægast sagt,“ segir hann um viðbrögðin.

Nýtir sömu veðurgögn

Hann leggur áherslu á einfalt og aðgengilegt viðmót og ætlar að þróa síðuna áfram í samræmi við óskir notenda.

„Ég er að bíða eftir viðbrögðum og mun búa til það sem fólk vill hafa.“

Sem dæmi nefnir hann að ef notendur vilji sjá veðurupplýsingar settar fram í töflum, líkt og á norska veðurvefnum yr.no, sé ekkert því til fyrirstöðu að bæta slíku við.

Veðurspárnar á síðunni byggjast á Harmonie-veðurgögnum sem hann nálgast í gegnum dönsku veðurstofuna.

Hann segir að um sé að ræða sömu veðurgögn og Veðurstofa Íslands nýtir, en að hann sæki þau í gegnum danskt gagnakerfi í stað þess að nota nýjan bakenda íslensku Veðurstofunnar.

Líðan fólks byggist á veðrinu

Freyr hefur haft mikinn áhuga á veðri frá því að hann man eftir sér, hann starfaði um árabil í ferðaþjónustu og var einnig félagi í björgunarsveit.

Hann starfaði meðal annars hjá Arctic Adventures í átta ár og segir að fyrrverandi samstarfsmenn hans, sem starfa á Langjökli, séu þegar farnir að nýta nýju veðursíðuna.

Freyr hefur engar tekjur af nýju síðunni heldur er verkefnið fyrst og fremst sprottið af áhuga hans á veðri og forritun.

Hann hyggst halda áfram að þróa vefinn og bæta við nýjungum eftir því sem ábendingar berast frá notendum.

„Lífið snýst auðvitað bara um veðrið á Íslandi,“ segir Freyr og bætir við að veðrið hafi mikil áhrif á daglegt líf landsmanna.

„Líðan fólks byggist rosalega mikið á veðrinu.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab