Brann lenti í vandræðum eftir frestun
Leikmenn norska knattspyrnuliðsins Brann áttu heldur óvenjulegt kvöld í Osló í gær.
Útileikur Brann gegn KFUM Oslo tafðist um tvær klukkustundir vegna bilunar í flóðljósum á leikvanginum. Upphaflega átti leikurinn að hefjast klukkan 17 en ekki var hægt að flauta hann á fyrr en klukkan 19. Brann vann leikinn 4:3.
Töfin hafði þær afleiðingar að Brann missti af fluginu heim til Bergen og þurfti því að gista í Ósló. Ekki liggur fyrir hvort KFUM Oslo verði refsað vegna tæknibilunarinnar.
Næsti leikur Brann er heimaleikur gegn danska liðinu AGF í miklum Íslendingaslag í Sambandsdeild Evrópu á fimmtudagskvöld.
Fjórir Íslendingar eru í herbúðum Brann, þeir Kristall Máni Ingason, Sævar Atli Magnússon, Eggert Aron Guðmundsson og Kjartan Már Kjartansson. Með AGF leika þrír Íslendingar, þeir Mikael Neville Anderson, Daníel Leó Grétarsson og Tómas Óli Kristjánsson.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/67/94/1679411.jpg)