„Pabbi, hvað gerðir þú í dag? Ég drap sautján menn, nauðgaði sex konum og rændi fimm bílum, en þú, elskan mín?“

Kristinn H. Guðnason

Mánudaginn 23. nóvember 2026 17:30

Sverrir er ekki hrifinn af „leiknum ljóta“ GTA VI.

Sverrir Björnsson, hönnuður, veltir því fyrir sér hvers vegna hundruð milljóna heimilisfeðra hafi tekið sé frí frá vinnu í síðustu viku til þess að spila nýjan ofbeldistölvuleik. Áhugi karlmanna á ofbeldi sé merkilegur og græðgin sé aðalorsök þess.

„Um daginn tóku hundruð milljóna venjulegra heimilisfeðra sér frí frá vinnu og fjölskyldum til að geta sökkt sér ótruflaðir í nýjan tölvuleik sem gengur út á að beita annað fólk ofbeldi til að komast yfir peninga,“ segir Sverrir í aðsendri grein á Vísi. Á hann þar vitaskuld við leikinn Grand Theft Auto VI, eða GTA VI.

Segir hann að fjölmiðlar hafi farið hamförum í umfjöllun um tölvuleikinn og tekið viðtöl við menn sem dvelja í hugarheimum. Einn faðirinn hafi sagt að það væri óhugnanlegt hversu raunverulegur leikurinn væri. Hann hugðist samt spila hann í einni törn í næstu viku.

„Hvernig skyldi spjallið við eldhúsborðið vera þessa dagana? „Pabbi, hvað gerðir þú í dag?“ „Ég drap sautján menn, nauðgaði sex konum og rændi fimm bílum, en þú, elskan mín?“ segir Sverrir.

Gamlar rætur

Segir Sverir áhuga karlmanna á ofbeldi vera merkilegan. Nær eingöngu séu það karlmenn sem spila „leikinn ljóta.“ Þessi ofbeldishneigð karla sé reyndar löngu þekkt og birtist meðal annars í áhuga á ofbeldisíþróttum, tölum um ofbeldi karla gegn konum og börnum og í verkum margra þjóðarleiðtoga.

Sjá einnig:

Fox-fréttamaður bætist í hóp þeirra sem gagnrýna GTA 6 - „Hannað til að gera karlmenn að kerlingum“ 

„Líklega á ofbeldishneigð okkar sér milljóna ára gamlar rætur, jafnvel aftur í skriðdýrsheilann sem er, að mér skilst, innsta lag heilans. Það merkilegasta við manninn er tilraun hans til að brjóta af sér árásargjarnt eðli sitt og reyna að byggja upp menningu og samfélög sem byggjast á samstarfi og samhyggð,“ segir Sverrir. „Það er því sorglegt að sjá þegar við köstum frá okkur siðmenningunni og hendum okkur aftur og aftur út í ofbeldi, stríð og þjóðarmorð.“

Græðgin knýr ofbeldið

Þetta ofbeldi sé knúið áfram af græðgi. Það sjáist bæði í umfjöllun um tölvuleikinn sem og fleiru, svo sem óstöðvandi ofbeldi gagnvart náttúrunni.

„Græðgin er aðal orsök ofbeldis og það eru ekki bara stór glæpamennirnir sem eru sekir um endalausa ágirnd. Við getum aldrei stillt okkur um að fá meira en við þurfum,“ segir Sverrir.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab