Þorgerður Katrín: Aðild að ESB ekki sjálfstætt markmið – tæki til að efla hag almennings

Kappið ber fegurðina ofurliði hjá stjórnarandstöðunni og gjarnan virðist vera kapphlaup milli Miðflokks- og Sjálfstæðismanna um það hver geti verið með mestu öfgayfirlýsingarnar. Aldrei hefur verið meiri þörf fyrir frjálslyndan flokk sem stendur vörð um almannahagsmuni en einmitt núna. Nei-ið í þjóðaratkvæðagreiðslunni þýðir að nú verðum við að fara seinfarnari og torfærari leið ella að því að efla efnahagslegan stöðugleika og auka hagsæld þjóðarinnar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar:

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Einhverjir stjórnarandstæðingar hafa verið með upphrópun: Nú er þjóðaratkvæðagreiðslan að baki. Það var eina stefnumál Viðreisnar, koma okkur í Evrópusambandið. Nú hefur Viðreisn bara lokið tilgangi sínum. Verkefnið mistókst og Viðreisn getur bara hætt. Hefur nokkurn tímann verið meiri þörf fyrir Viðreisn?

„Aldrei. Í rauninni, frá upphafi flokksins, þá hafa áskoranirnar aldrei verið meiri fyrir samfélagið og ekki síst það að það verði hér frelsisraddir og frjálslynd öfl sem hafi hátt núna þegar við erum að sjá svona afturhaldsöfgaöfl, sérstaklega til hægri en eitthvað yst til vinstri núna. Ég vil til að mynda ekki sjá sömu þróun og er núna í Sachsen-Anhalt í Þýskalandi þar sem að öfgavinstrið og öfgahægrið er að fara saman í eina sæng. En þetta getur gerst hérna heima líka miðað við hvernig stjórnarandstöðuflokkarnir tala og ég sé ekki lengur mun, ekki mjög skýran mun á milli Miðflokks og Sjálfstæðisflokks.“

Það tek ég undir með þér.

„Og mér finnst við vera svolítið í keppni í einhverjum yfirlýsingum um hver getur verið meiri öfgamaður í alls konar málum og svona popúlisma og mér leiðist það að og ég verð að segja það að mér leiðist það að sjá minn gamla flokk vera farinn inn á þessar brautir en við verðum líka að átta okkur á því að Evrópumálin, þeim hefði einhvern veginn lokið annars vegar með, með þessu nei-i en líka með því að fara, ef Ísland hefði farið inn í Evrópusambandið.

En ég vil líka benda á að Sjálfstæðisflokkurinn þarf bara tvennt í stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins. Það er annars vegar frá 1929. Það er annars vegar að Ísland yrði sjálfstætt ríki. Það varð það 1944 og telja þá Sjálfstæðismenn tilgangi sínum lokið. Að sjálfsögðu ekki. Síðan var hitt málið frelsi. Grundvallargildi Viðreisnar er almannahagsmunir og frelsi.

Evrópusambandið og verða aðili að Evrópusambandinu var bara hluti, það var ekki markmið í sjálfu sér heldur það var tæki til þess að ýta með svona hraðari hætti undir almannahagsmuni í þeirri breiðu mynd sem það er. Það var bara ein leið til þess að ná markmiðinu um það að auka hagsæld Íslendinga, auka efnahagslegan stöðugleika, efnahagslegt öryggi, að líkt þenkjandi þjóðir stæðu vörð um alþjóðakerfið, virðingu fyrir alþjóðlegum friðhelgi landamæra og við sjáum það til dæmis bara á Grænlandsmálinu hvað það skipti máli að það var prinsippfast Evrópusamband sem stóð með, lykilbreyta, og Danir og Grænlendingar hafa sagt það sjálfir að þau stóðu með Dönum. Þannig að þetta var bara leiðin að því. Nú, þjóðin sagði nei við því að gera þetta með frekar hröðum hætti, ná efnahagslegum stöðugleika og auka hagsældina með þessum hætti og þá förum við bara aðrar, þær eru snúnari. Við þurfum að sýna meira aðhald og núna erum við að ræða þetta markmið okkar varðandi hallalaus fjárlög, reka ríkissjóð með afgangi.

Við þurfum aukinn aga, meðal annars út frá því að við erum ekki að fara einhverja leið sem er styttri, við erum að fara aðeins lengri leið í áttina að ná niður vöxtum og torfærari. Ég dreg það fram að bara vaxtakostnaður Íslands er held ég einhverjir 150-160 milljarðar. Með því að fara inn í Evrópusambandið hefðu sá vaxtakostnaður lækkað um að minnsta kosti helming.

Það eru fjárhæðir, 70, 80 milljarðar, sem hefði verið hægt að nota í að halda áfram að byggja upp innviðina, velferðarkerfið, menntakerfið …“

Það er bara einn Landspítali.

„Já, það er bara einn Landspítali, utan allan kostnaðinn sem hefur lagst á almenning í landinu varðandi þennan dýra, dýra gjaldmiðil sem á endanum sérhagsmunaöflin börðust fyrir mikið til þess að halda. En gott og vel, við erum að bara vinna út frá þeim veruleika sem að við erum í núna og ég held að við sjáum líka núna hvað það skiptir máli að það varð algjör hrein innáskipting á völdum 2024, að þjóðin, hún kaus breytingar. Hún kaus það að fjarlægja sig frá gömlu pólitíkinni, pótintátapólitík sem var stunduð hér þar sem stjórnmálaöflin með stundum strengjabrúður, stundum ekki með þá hagsmunaaðila sem að þeim standa, réðu öllu og það er náttúrlega þannig að þegar maður horfir á þetta stundum og hlustar á þetta garg sem er í stjórnarandstöðunni, þó að það séu sumir sem eru með mjög málefnalega gagnrýni. Ég vil draga það fram og það er jafnvel þvert á, á flokka. En þá finnst mér samt miður að heyra öfgarnar og æsinginn vera að ná, það er svona kapp sem er að bera fegurðina ofurliði hjá stjórnarandstöðunni.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab