Glæsilegur árangur íslensku keppendanna í Noregi

Katla Björk Ketilsdóttir vann með yfirburðum.

Katla Björk Ketilsdóttir vann með yfirburðum. Ljósmynd/Lyftingasamband Íslands

Katla Björk Ketilsdóttir og Guðný Björk Stefánsdóttir urðu Norðurlandameistarar í ólympískum lyftingum um helgina þegar Norðurlandamótið fór fram í Noregi. Þá vann Ingimar Jónsson til silfurverðlauna og Rökkvi Guðnason hafnaði í þriðja sæti.

Katla Björk sigraði með yfirburðum í -61 kg flokki kvenna. Hún snaraði 86 kg og jafnhenti 105 kg, aðeins einu kílói frá sínum besta árangri í greininni. Samanlagt lyfti hún 191 kg og hafði 16 kg forskot á næsta keppanda.

Guðný Björk varð Norðurlandameistari í -77 kg flokki eftir harða keppni við Körlu Nygaard Nielsen frá Danmörku. Guðný snaraði 90 kg og nýtti allar þrjár tilraunir sínar í jafnhendingu. Hún lyfti 117 kg í síðustu tilraun og endaði með 207 kg samanlagt, einu kílói meira en Karla.

Silfur hjá Ingimari

Ingimar Jónsson vann til silfurverðlauna í -75 kg flokki karla. Hann snaraði 122 kg, bætti þar með sinn besta árangur í greininni og jafnhenti 147 kg. Samanlagt lyfti hann 269 kg. Aðeins Norðmaðurinn Stefan Rönnevik, sem lyfti 276 kg, stóð honum framar.

Árangur Ingimars er sérstaklega athyglisverður þar sem hann var aðeins fjórum kílóum frá sínum besta samanlagða árangri, sem hann náði í mun þyngri flokki, gamla -88 kg flokknum. Þá bætti hann eigið met í snörun um tvö kíló.

Rökkvi með sex gildar lyftur og brons

Rökkvi Guðnason hafnaði í þriðja sæti í -95 kg flokki eftir að hafa náð öllum sex lyftum sínum. Hann bætti sig í snörun, jafnhendingu og samanlögðum árangri. Rökkvi snaraði 125 kg og jafnhenti 160 kg, sem var mesta jafnhending mótsins í flokknum.

Samanlagt lyfti Rökkvi 285 kg, jafn miklu og Daninn Johannes Bjørn Schwerin sem fékk silfurverðlaunin. Rökkvi varð þó að sætta sig við bronsið. Hann bætti jafnframt eigið Íslandsmet í U23-flokki í öllum þremur greinum.

Bætingar hjá fleiri keppendum

Freyja Björt Svavarsdóttir hafnaði í fimmta sæti í -61 kg flokki og bætti sig í öllum greinum. Hún snaraði 70 kg, jafnhenti 92 kg og lyfti samtals 162 kg.

Hallfríður Anna Benediktsdóttir varð einnig í fimmta sæti, í -77 kg flokki. Hún bætti sig um fjögur kíló í snörun með 86 kg og náði 180 kg samanlagt. Þá bætti hún U23-Íslandsmet Bergrósar Björnsdóttur í snörun.

Snædís Líf Pálmarsdóttir bætti sinn besta árangur í jafnhendingu með 97 kg og jafnaði jafnframt sinn besta samanlagða árangur, 171 kg.

Önnur úrslit:

Andrea Rún Þorvaldsdóttir, -69 kg: 83 / 95 / 178 kg, 7. sæti
Snædís Líf Pálmarsdóttir, -69 kg: 74 / 97 / 171 kg, 9. sæti
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, -86 kg: 80 / 105 / 185 kg, 5. sæti
Valdís Brynjarsdóttir, -86 kg: 82 / 95 / 177 kg, 6. sæti og setti auk þess þrjú Íslandsmet í U23.
Tindur Eliasen, -85 kg: 124 / 143 / 267 kg, 5. sæti
Viktor Jóhannes Kristófersson, -110 kg: snaraði 130 kg en náði ekki gildri jafnhendingu (163, 165, 165)

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab