Ásar og Heimar inn í úrvalsvísitöluna
Ásar hf. og Heimar hf. bætast við úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands, OMXI15, við opnun markaðar 1. desember. JBT Marel Corporation og Skagi hf. falla á sama tíma úr vísitölunni.
Þetta kemur fram í tilkynningu Nasdaq í dag um niðurstöðu hálfsárlegrar endurskoðunar á samsetningu vísitölunnar.
Heimar koma aftur inn í vísitöluna eftir hálfs árs fjarveru. Félagið féll úr henni 1. júní, sama dag og Skagi bættist við.
Við val á félögum í úrvalsvísitöluna er meðal annars horft til veltu í viðskiptum með hlutabréf þeirra og markaðsvirðis bréfa í frjálsu floti. Samsetning vísitölunnar er endurskoðuð tvisvar á ári og taka breytingarnar gildi fyrsta viðskiptadag í júní og desember.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗