Draumurinn rættist og Sigga klæddist kjól af mömmu sinni

Fegurðardrottningin og söngkonan Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, betur þekkt sem Sigga Ózk, var glæsileg á fyrra undanúrslitakvöldi Ungfrú alheims í gærkvöldi. Hún klæddist kjól frá móður sinni 

Annað kvöld verða úrslit og fær þá Sigga að vita hvort hún hafi komist áfram, en aðeins 30 keppendur komast í úrslit.

Keppnin fer fram í Púertó Ríkó í ár og keppa 116 konur um titilinn. Þetta er heljarinnar ferli. Fyrsta keppniskvöldið var á laugardaginn og sýndu fegurðardísirnar þjóðbúninga. Í gær var atriði með sundfötum og síðkjólum og svo, eins og fyrr segir, verða úrslit annað kvöld.

Sjá einnig: Sigga Ózk: „Eina sem skiptir máli er að hafa gaman“

Sigga klæddist rauðum kjól í eigu móður sinnar í gærmorgun og birti fallega mynd af sér sem barni í kjólnum. 

„Mig dreymdi um að vera prinsessa þegar ég klæddist kjólunum hennar mömmu, og nú hefur það ræst,“ sagði fegurðardrottningin.

Sigga var stórglæsileg í þjóðbúningnum á laugardagskvöldið, sjáðu myndbandið hér að neðan.

Við óskum Siggu góðs gengis á morgun!

Sigga var gestur í Fókus, viðtalsþætti DV, í byrjun árs. Fylgdu Siggu Ózk á Instagram og TikTok. Hlustaðu á tónlistina hennar á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab