Meirihlutinn vill afgreiða bókun 35 áður en dómur fellur
ESA höfðaði málið 30. september. Stofnunin telur að íslensk lög tryggi ekki með fullnægjandi hætti forgang EES-reglna sem hafa verið innleiddar hér á landi þegar þær stangast á við önnur ákvæði almennra laga. Málið er enn til meðferðar hjá EFTA-dómstólnum. Ljósmynd/Colourbox
Meirihluti utanríkismálanefndar Alþingis leggur til að frumvarp um innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn verði samþykkt án þess að beðið verði eftir niðurstöðu EFTA-dómstólsins.
Í nefndaráliti sem birt var í dag segir meirihlutinn að málshöfðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) gegn Íslandi hafi engu breytt um forsendur frumvarpsins.
Nefndin afgreiddi frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til annarrar umræðu í morgun. Eins og mbl.is greindi frá lögðust allir fulltrúar minnihlutans gegn því að afgreiða frumvarpið úr nefndinni á þessu stigi. Þeir töldu að fyrst þyrftu að liggja fyrir frekari upplýsingar um málsvörn Íslands.
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt að samþykkt frumvarpsins geti skaðað málstað Íslands fyrir EFTA-dómstólnum.
Vísar til dóms um fæðingarorlof
ESA höfðaði málið 30. september. Stofnunin telur að íslensk lög tryggi ekki með fullnægjandi hætti forgang EES-reglna sem hafa verið innleiddar hér á landi þegar þær stangast á við önnur ákvæði almennra laga. Málið er enn til meðferðar hjá EFTA-dómstólnum.
Meirihlutinn vísar til dóms Hæstaréttar frá febrúar 2024 í máli konu sem fékk lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna þess að hún hafði starfað erlendis á viðmiðunartímabilinu.
Hæstiréttur sýknaði ríkið og taldi að ákvæði EES-laganna um túlkun íslenskra laga til samræmis við EES-samninginn fæli ekki í sér almenna forgangsreglu eins og bókun 35 gerir ráð fyrir.
Að mati meirihlutans sýnir dómurinn að bókunin hafi ekki verið innleidd með réttum hætti. Meirihlutinn telur enga ástæðu til að ætla að EFTA-dómstóllinn komist að annarri niðurstöðu um það og segir að íslenski löggjafinn eigi sjálfur að ákveða hvernig innleiðingunni verði háttað.
Vill vísa til löggjafans í ákvæðinu
Samkvæmt frumvarpinu fengi skýrt og óskilyrt íslenskt lagaákvæði sem innleiðir EES-skuldbindingu með réttum hætti forgang ef það stangast á við annað almennt lagaákvæði. Löggjafinn gæti þó mælt fyrir um annað. Samsvarandi regla gilti ef stjórnvaldsfyrirmæli sem innleiða EES-skuldbindingu stangast á við önnur stjórnvaldsfyrirmæli. Meirihlutinn telur að forgangsreglan samrýmist stjórnarskrá og að dómstólar geti áfram metið hvort lög standist hana.
Eina breytingin sem meirihlutinn leggur til er að nota orðið „löggjafinn“ í stað „Alþingi“ í ákvæðinu. Hann vísar þar til þess að samkvæmt stjórnarskrá fari Alþingi og forseti Íslands saman með löggjafarvaldið.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗