Sýn missir réttinn að Meistaradeildinni
Evrópukeppnir félagsliða karla verða ekki lengur á dagskrá Sýnar Sport frá og með næstu leiktíð.
Viaplay tekur þá alfarið við sýningarréttinum að Meistaradeild Evrópu en síðustu ár hafa Sýn og Viaplay deilt réttinum sín á milli.
Livey tekur hins vegar við sýningarréttinum að Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni.
Samkvæmt frétt Vísis vann Viaplay útboðið á Meistaradeildinni en Livey útboðið á Evrópu- og Sambandsdeildinni.
Nýju réttindin taka gildi frá og með næstu leiktíð og gilda til ársins 2031.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗