Telur viðskipti Sigurjóns hafa verið til málamynda
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, telur líklegast að aldrei hafi staðið til að eignarhaldið breyttist í reynd þegar Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, og eiginkona hans seldu 51% hlut í strandveiðiútgerðinni Sleppu ehf.
Bergþór vill að kannað verði hvort fleiri sambærilegir samningar hafi verið gerðir í kjölfar breytinga á reglum um eignarhald á strandveiðibátum.
Í samtali við mbl.is í Alþingishúsinu í dag sagði Bergþór að svör Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefðu ekki varpað frekara ljósi á viðskipti Sigurjóns. Hann kvaðst þó skilja svör hennar svo að hún myndi beita sér fyrir því að stofnanir á hennar vegum könnuðu viðskipti af þessu tagi. Hanna Katrín boðaði enga úttekt í svörum sínum á Alþingi fyrr í dag.
Segir áhyggjur hafa komið fram þegar reglunum var breytt
Bergþór sagði að minnihluti atvinnuveganefndar hefði haft áhyggjur af því þegar reglunum var breytt að samningar yrðu gerðir til málamynda svo eignarhaldið virtist uppfylla nýju skilyrðin. Hann sagði að ítrekað hefði verið óskað upplýsinga um slík viðskipti í nefndinni og gagnrýndi meirihlutann fyrir að hafa að hans mati ekki séð til þess að þær lægju fyrir.
Bergþór sagði það sérstakt áhyggjuefni ef formaður nefndarinnar sem fjallaði um fyrirkomulag strandveiða hefði sjálfur farið í kringum reglurnar. Sigurjón var þá formaður atvinnuveganefndar og er nú formaður fjárlaganefndar.
Með reglugerðarbreytingu vorið 2025 var kveðið á um að í hverri strandveiðiferð skyldi vera um borð lögskráður einstaklingur sem ætti meira en helmingshlut í bátnum, beint eða óbeint í gegnum félag.
Kaupverðið ógreitt þegar samningnum var rift
Morgunblaðið greindi frá því í morgun að hjónin hefðu selt hlutinn í apríl í fyrra og að samningnum hefði verið rift í mars á þessu ári. Samkvæmt riftunarsamkomulaginu var umsamið kaupverð 255 þúsund krónur og var það enn ógreitt þegar samningnum var rift.
Í viðtali við Vísi í fyrra sagðist Sigurjón áætla að hann hefði fengið 16 til 18 milljónir króna greiddar fyrir sinn hlut. Þegar Bergþór var spurður í viðtalinu við mbl.is hvað styddi mat hans á viðskiptunum vísaði hann meðal annars til misræmisins milli fyrri ummæla Sigurjóns og þess sem fram kemur í riftunarsamkomulaginu.
Sigurjón hefur hafnað því að viðskiptin hafi verið til málamynda. Hann sagði við DV í dag að félagið hefði verið skuldsett og að ætlunin hefði verið að afrakstur útgerðarinnar gengi til greiðslu skuldar félagsins við þáverandi eigendur.
Ráðherra vísar á Fiskistofu
Í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag spurði Bergþór Hönnu Katrínu hvort hún hefði vitað af viðskiptunum og hver afstaða hennar væri til þeirra. Hún sagðist hafa frétt af umfjöllun Morgunblaðsins en ekki kynnt sér hana.
Hún benti á að málefni byggðahluta aflamarkskerfisins, svonefnds 5,3% potts, hefðu verið færð til innviðaráðuneytisins. Um þann hluta málsins sem heyrði undir hana vísaði hún á Fiskistofu. Þangað mætti kæra málið ef í ljós kæmi að eitthvað óeðlilegt hefði átt sér stað. Hún kvaðst efast um að svo væri.
Hanna Katrín hafnaði jafnframt gagnrýni Bergþórs á störf atvinnuveganefndar og sagði að hvorki formaður nefndarinnar né meirihluti hennar gæti stöðvað upplýsingagjöf með þeim hætti sem hann lýsti.
Þegar Bergþór spurði sérstaklega hvort hún myndi styðja úttekt á viðskiptum með eignarhluti í strandveiðibátum sagði hún að frávik yrðu skoðuð ef þau kæmu í ljós. Ekkert hefði að hennar viti komið fram sem sýndi að svo væri.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
