Vildi kanna eldvarnir í húsi þar sem 25 áttu lögheimili

Slökkviliðið taldi vísbendingar um að stök herbergi væru leigð út í húsinu og að innra skipulagi þess hefði verið breytt til að fjölga svefnrýmum. mbl.is/Karítas

Landsréttur vísaði frá kæru Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna beiðni um aðgang að íbúðarhúsi í Reykjavík til að kanna eldvarnir. Þar voru 25 manns með skráð lögheimili í lok október og tvær íbúðir skráðar í húsinu. Hve margir bjuggu þar í reynd lá ekki fyrir.

Úrskurðurinn féll 20. nóvember en var birtur í dag.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður vísað beiðni slökkviliðsins frá þar sem það hafði ekki fullreynt samstarf við eigendur hússins.

Landsréttur taldi að heimild skorti til að kæra úrskurð héraðsdóms og tók því beiðnina ekki til efnislegrar meðferðar.

Hafði áhyggjur af flóttaleiðum

Slökkviliðið taldi vísbendingar um að stök herbergi væru leigð út í húsinu og að innra skipulagi þess hefði verið breytt til að fjölga svefnrýmum. Það hafði meðal annars áhyggjur af því að íbúar hefðu ekki greiðan aðgang að flóttaleiðum.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur kom ábendingu um húsnæðið á framfæri við slökkviliðið í ágúst. Sá sem leitaði til eftirlitsins taldi að í húsinu væru að minnsta kosti 19 herbergi og að tveir leigjendur væru í sumum þeirra.

Á samþykktum uppdráttum frá 2003 er eitt rými á hverri hæð merkt sem herbergi eða svefnherbergi, fjögur alls. Þar eru einnig sýnd önnur rými, svo sem stofur og vinnuherbergi.

Slökkviliðið vísaði jafnframt til eldri fjölmiðlaumfjöllunar um húsnæðið. Héraðsdómur benti á að myndefni og önnur gögn úr umfjölluninni hefðu ekki verið lögð fram í málinu. Sá annmarki réð þó ekki einn úrslitum um frávísunina.

Slökkviliðið óskaði eftir aðgangi að húsinu í september og ítrekaði beiðnina síðar í sama mánuði. Eigendur samþykktu að veita aðgang að sameiginlegu rými en slökkviliðið taldi hann ekki nægja. mbl.is/Karítas

Eigendur samþykktu aðgang að sameiginlegu rými

Slökkviliðið óskaði eftir aðgangi að húsinu í september og ítrekaði beiðnina síðar í sama mánuði. Eigendur samþykktu að veita aðgang að sameiginlegu rými en slökkviliðið taldi hann ekki nægja. Lögmaður eigendanna sagði að þeir veittu að svo stöddu ekki samþykki fyrir frekari aðgangi og óskaði eftir gögnum um forsendur beiðninnar. Hann óskaði jafnframt eftir fundi.

Slökkviliðið vildi bíða með fund þar til niðurstaða dómara lægi fyrir. Fjórum dögum síðar lagði það fram beiðni um aðgang að báðum eignarhlutum hússins og bílskúr eða geymslu á lóðinni til skoðunar og myndatöku.

Héraðsdómur taldi að slökkviliðið hefði átt að verða við fundarbeiðninni og veita umbeðnar upplýsingar áður en það leitaði til dómsins. Meðalhófsregla brunavarnalaga kveður á um að ekki megi ganga lengra en þörf er á hverju sinni. Dómurinn taldi vægari úrræði ekki hafa verið fullreynd og vísaði beiðninni frá 30. október. 

Hafði áður leitað úrskurðar um sama hús

Slökkviliðið leitaði einnig eftir úrskurði um aðgang að húsinu árið 2022. Þeirri beiðni var vísað frá, meðal annars vegna þess að þágildandi lagaheimild þótti ekki nægilega skýr. Ákvæðinu var síðar breytt og skilyrði fyrir aðgangi að íbúðarhúsnæði útfærð nánar.

Landsréttur benti á að lög um brunavarnir hefðu hvorki að geyma heimild til að kæra úrskurð sem þennan né almenna tilvísun til laga um meðferð einkamála. Kærunni var því vísað frá. Hvorugur dómstóllinn tók efnislega afstöðu til þess hvort brunavörnum í húsinu væri áfátt.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab