HM í fyrsta sinn í Bretlandi í 69 ár

Spænska landsliðið vann HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi árið 2023.

Spænska landsliðið vann HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi árið 2023. AFP/Drew Hallowell

Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti í dag hvar heimsmeistaramót kvenna fara fram árin 2031 og 2035.

Heimsmeistaramótið árið 2031 fer fram í fjórum löndum, Bandaríkjunum, Mexíkó, Kosta Ríka og Jamaíku.

Mótið árið 2035 verður síðan haldið í Bretlandi, þar sem leikið verður á Englandi, Skotlandi, Norður-Írlandi og Wales.

Alls taka 48 þjóðir þátt í báðum mótunum en 32 þjóðir keppa á HM í Brasilíu á næsta ári.

Þetta verður í fyrsta sinn sem heimsmeistaramót í knattspyrnu fer fram í Bretlandi síðan England varð heimsmeistari karla árið 1966.

Ísland getur komist á HM í fyrsta sinn í Brasilíu á næsta ári með því að sigra Portúgal í tveggja leikja einvígi í byrjun næsta mánaðar. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab