Rússar sagðir undirbúa að senda kjarnorkuvopn út í geim fyrir áramót – Afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar

Rússar eru sagðir undirbúa að senda gervihnött búinn kjarnorkuvopni á braut um jörðu áður en árið er á enda. Vestrænar leyniþjónustustofnanir telja að Rússar séu að undirbúa slíka aðgerð, en kjarnorkusprenging í geimnum gæti lamað fjarskipti, leiðsögukerfi og mikilvæga innviði á Vesturlöndum.

Breska blaðið Daily Mail greinir frá þessu í dag og vísar meðal annars til upplýsinga frá þýskum og bandarískum yfirvöldum.

Gervihnötturinn er sagður bera heitið Sputnik-S og hafa verið fullsmíðaður fyrir nokkrum árum. Samkvæmt mati geimherstjórnar Þýskalands gætu Rússar skotið honum á loft strax í desember.

Ekki hefur þó verið staðfest með óyggjandi hætti að Rússar hyggist senda slíkt vopn út í geim á næstu vikum.

Gæti lamað samfélagið

Óttast er að kjarnorkusprenging í geimnum gæti gert gríðarlegan fjölda gervihnatta óvirkan og haft alvarleg áhrif á daglegt líf jarðarbúa.

GPS-leiðsögukerfi, farsímasamband, bankastarfsemi og raforkukerfi gætu orðið fyrir verulegri röskun. Þá gætu afleiðingarnar náð til vöruflutninga og matvæladreifingar.

Hernaðarleg áhrif yrðu sömuleiðis mikil. Vestræn ríki reiða sig í ríkum mæli á gervihnetti til fjarskipta, njósna og stýringar nákvæmnisvopna.

Stephen Whiting, yfirmaður geimherstjórnar Bandaríkjanna, hefur varað við því að kjarnorkusprenging í geimnum gæti gert um þriðjung gervihnatta á lágri braut um jörðu óvirkan á fyrstu klukkustundunum eða dögunum. Aðrir gætu síðan orðið óvirkir á næstu mánuðum.

Óttast óeirðir og upplausn

Þýskir sérfræðingar hafa þegar sett á svið umfangsmikla æfingu til að kanna hvernig samfélagið myndi bregðast við stórfelldri bilun gervihnattakerfa. Niðurstöðurnar voru uggvænlegar.

Philipp Jan Schäfer, sem stýrði æfingunni, segir að afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar ef mikilvæg gervihnattakerfi yrðu skyndilega ónothæf. Truflanir á rafmagni, fjarskiptum og vöruflutningum gætu skapað alvarlegt neyðarástand og jafnvel leitt til rána og óeirða.

„Í versta falli gætum við orðið vitni að ránum og óeirðum af því tagi sem við höfum hingað til helst séð í hamfaramyndum,“ segir hann.

Rússar neita

Sérfræðingar telja Þýskaland illa undirbúið fyrir langvarandi röskun á þjónustu sem byggir á gervihnöttum. Þýsk stjórnvöld hyggjast því gefa út sérstakar leiðbeiningar um viðbrögð við slíkri neyð.

Bandarísk stjórnvöld hafa um nokkurra ára skeið varað við því að Rússar séu að þróa kjarnorkuvopn til notkunar í geimnum. Að koma slíku vopni fyrir á braut um jörðu myndi brjóta gegn alþjóðasamningi frá árinu 1967 sem bannar að kjarnorkuvopnum sé komið fyrir á braut um jörðu.

Rússneska sendiráðið hafnar ásökununum alfarið og segir þær hluta af áróðursherferð gegn Rússlandi. Öll geimstarfsemi landsins sé friðsamleg og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab