Börn fædd á Íslandi fá ekki vegabréf - Hvergi með skráð ríkisfang
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn tveggja barna sem fædd eru á hér á landi og eru systkini um vegabréf fyrir útlendinga. Þrátt fyrir að vera fædd á Íslandi eru börnin ekki með skráð ríkisfang neins staðar en foreldrar þeirra eru frá Sri Lanka. Byggði kæra til nefndarinnar ekki síst á því að börnin væru ríkisfangslaus en nefndin segir svo ekki vera, í skilningi laga.
Bæði börnin eru með ótímabundið dvalarleyfi og hafa ekki búið annars staðar en á Íslandi.
Útlendingastofnun hafnaði umsókn þeirra um vegabréf fyrir útlendinga á grundvelli þess að ekki hafi verið sýnt fram á að ekki hafi verið hægt að fá ferðaskilríki fyrir börnin frá Sri Lanka.
Var þá lögð fram kæra til kærunefndar útlendingamála. Í kærunni kom fram að börnin væru ríkisfangslaus og hafi verið það frá fæðingu. Vísað var til framlagðrar staðfestingar frá stjórnvöldum í Srí Lanka um að þau hafi ekki verið skráð sem ríkisborgarar þar í landi. Þá hafi rökstuðningur Útlendingastofnunar fyrir synjun þeirra verið byggður á misskilningi um lagaskilyrði ákvæða reglugerðar um íslensk vegabréf varðandi ríkisfangsleysi.
Með vísan til ríkisfangsleysis barnanna væru skilyrði ákvæðisins uppfyllt, enda væri samkvæmt ákvæðinu annaðhvort gerð krafa um að umsækjanda væri ómögulegt að afla ferðaskilríkis frá heimaríki sínu eða að hann sé ríkisfangslaus. Óviðeigandi væri að krefjast þess að sýnt yrði fram á að börnin hafi ekki getað fengið vegabréf frá heimaríki þegar þau hafi ekkert ríki til að leita til vegna ríkisfangsleysis síns. Jafnframt var bent á að lagðar hafi verið fram umsóknir barnanna um íslenskan ríkisborgararétt.
Var í kærunni einnig vísað til þess að áður en börnin fengu ótímabundið dvalarleyfi hafi þau fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Einnig var vísað til ríkisfangsleysisins og að við meðferð umsókna þeirra um vegabréf fyrir útlendinga yrði að meta aðstæður þeirra með heildstæðum hætti.
Var einnig í kærunni vísað til barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og loks þess að lífsnauðsynlegt væri fyrir börnin að hafa aðgang að ferðaskilríkjum á meðan umsóknarferli þeirra um íslenskan ríkisborgararétt stæði, enda væri það ferli tímafrekt.
Engin vegabréf
Í niðurstöðu kærunefndar útlendingamála segir að samkvæmt reglugerð verði vegabréf fyrir útlending aðeins gefið út ef umsækjandi sé löglega búsettur hér á landi og geti sýnt fram á að hann geti ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki, eða að hann sé ríkisfangslaus.
Nefndin segir að miðað við ákvarðanir Útlendingastofnunar telji stofnunin börnin vera ríkisborgara Sri Lanka. Í gögnum frá Sri Lanka sem lögð hafi verið fram segi að samkvæmt þarlendum lögum skuli barn sem fæðist utan ríkisins vera skráð sem srílankskur ríkisborgari, enda hafi að minnsta kosti annað foreldri þess verið ríkisborgari ríkisins við fæðingu barnsins. Í umræddu skjali sé jafnframt staðfest að börnin séu ekki skráð sem ríkisborgarar Sri Lanka.
Nefndin segir að samkvæmt gögnum málsins hafi Útlendingastofnun óskað eftir skriflegri staðfestingu á að börnin gætu ekki fengið útgefin vegabréf frá Sri Lanka. Í kjölfarið hafi stofnunin bent á að samkvæmt framlögðum gögnum frá Sri Lanka væri ekki ómögulegt fyrir börnin að fá vegabréf þaðan. Báðir foreldrar þeirra væru fæddir á Sri Lanka og gætu börnin því skráð sig sem ríkisborgara þar í landi og þannig fengið útgefið vegabréf.
Ekki útilokað
Kærunefnd útlendingamála segir ljóst að börnin séu ekki skráð sem ríkisborgarar Sri Lanka. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum þar í landi sé unnt að skrá fæðingu barna sem fædd séu erlendis og eigi að minnsta kosti annað foreldri með srílankskan ríkisborgararétt. Þá sé einnig hægt að óska eftir slíkri skráningu að liðnu því tímamarki sem almennt sé miðað við samkvæmt þarlendum reglum.
Það eitt að börnin hafi ekki verið skráð sem ríkisborgarar Sri Lanka leiði ekki sjálfkrafa til þeirrar niðurstöðu að þau séu ríkisfangslaus í skilningi laga um útlendinga. Í því sambandi verði að líta til þess hvort þeim standi til boða að öðlast ríkisfang. Staðan sé sú að börnunum standi til boða að skrá ríkisföng sín á Sri Lanka og liggi því ekki fyrir ómöguleiki fyrir þau til þess að öðlast srílankskt ríkisfang. Af þeim sökum séu þau ekki ríkisfangslaus í skilningi laganna.
Þá útiloki skráningarleysi þeirra það ekki að þau geti fengið ríkisfang sitt skráð og í framhaldinu aflað sér vegabréfa frá Sri Lanka. Í því sambandi verði að líta til þess að fyrirliggjandi upplýsingar bendi til þess að þeim standi til boða að óska eftir slíkri skráningu og að ekki hafi verið lögð fram gögn um að þeim hafi verið synjað um hana eða að aðrar hindranir standi í vegi fyrir henni. Aðgerðarleysi forsjáraðila í þessum efnum geti ekki eitt og sér skapað börnunum ríkari rétt til vegabréfs fyrir útlendinga en leiði af gildandi réttarreglum.
Niðurstaða nefndarinnar er því sú að ekki hafi verið sýnt fram á að það sé ómögulegt fyrir börnin að afla sér ferðaskilríkja frá Sri Lanka. Þau uppfylli því ekki skilyrði fyrir útgáfu vegabréfs fyrir útlendinga og synjun Útlendingastofnunar sé því staðfest.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗