Patreksfirðingur sleppur með skrekkinn - Gaf grunlausum vini sínum kannabisköku

Maður sem er íbúi á Patreksfirði hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Vestfjarða ef ákæru um að hafa stofnað heilsu vinar síns í augljósan háska. Gaf maðurinn vini sínum köku sem kannabis hafði verið blandað í en sagði vininum, að hans sögn, ekki frá því.

Maðurinn var ákærður fyrir hættubrot með því að hafa, að kvöldi mánudagsins 11. nóvember 2024, af gáska og á ófyrirleitinn hátt stofnað heilsu vinar síns í augljósan háska með því að gefa honum köku, sem innihélt ótilgreint magn kannabis, og ekki upplýst vin sinn um innihald kökunnar áður en hann neytti hennar, allt með þeim afleiðingum að vinurinn hafi fengið fékk ofsóknarkennd, orðið sveittur, kvíðinn og fengið hraðan hjartslátt.

Umrætt kvöld voru lögreglumenn, læknir og sjúkraflutningamaður kallaðir til. Í lögregluskýrslu kom fram að vinurinn hafi hljóðað mikið, skolfið og virst verulega hræddur. 

Hann fór til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði. Í lögregluskýrslunni var haft eftir hinum ákærða að hann hefði skipt kökunni í þrennt. Hann sjálfur hafi fengið einn hluta, vinurinn einn og sonur hins ákærða, sem bar vitni í málinu, hafi fengið síðasta hlutann. Lögreglumenn fóru á vettvang daginn eftir og leituðu í meðal annars kæliskáp og ruslatunnu en fundu ekkert saknæmt.

Halda áfram

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum felldi málið niður en Ríkissaksóknari felldi þá ákvörðun úr gildi og lagði fyrir embættið að senda málið til héraðssakóknara og lagt var fyrir það embætti að ákæra manninn.

Maðurinn sagði fyrir dómi að vinurinn hafi komið á heimili hans, en hringt á undan sér. Þar hafi þeir drukkið nokkuð af bjórum og síðan hafi sonur mannsins slegist í hópinn. Hafi hann síðan lagt til að þeir þrír fengju sér köku. Sagðist maðurinn hafa kallað kökuna bjórköku eða grasköku og því hafi vinur hans verið fullmeðvitaður um hvers konar köku var að ræða.

Sagðist maðurinn hafa fengið kökuna frá ótilgreindum mönnum sem hann hafi ekið frá Patreksfirði til Bíldudals. Sagðist hann hafa fengið þær upplýsingar að kakan myndi hjálpa mönnum að sofna. Sagðist maðurinn fram að þessu aldrei hafa haft neytt fíkniefna en hann hafi dregið kökuna fram til að fá vin sinn til að sofna og þannig binda enda á fylleríið sem þeir þremenningarnir voru á. Hafi vinur hans einnig þetta kvöld tekið inn bæði verkjalyf og róandi lyf. Sagðist maðurinn ekki hafa vitað nákvæmlega hvaða efni voru í kökunni. Hafi vinur hans eftir að hafa borðað sinn hluta orðið mjög ör og æstur og sakað hann um að eitra fyrir sér.

Vinskapur

Fyrir dómi sagði vinurinn að maðurinn hefði sagst vera með jólakökur. Um hafi verið að ræða smákökur. Þeir feðgar hafi tekið einn bita hvor af sinni kökunni en síðan hent þeim en hann sjálfur hafi borðað heila köku.

Sagðist vinurinn hafi fengið svima, svitnað og fengið óþægindi í hálsinn. Hann hafi talið um að ræða ofnæmisviðbrögð en þeir feðgar hafi hlegið að honum. Hann hafi síðan fundið fyrir dofa í andlitinu og loks ákveðið að hringja eftir aðstoð en hinn ákærði hafi reynt að koma í veg fyrir það. Hann hafi loks spurt soninn hvort honum hafi verið gefið eitthvað og þá sonurinn sagt að kakan sem hann borðaði hefði verið hasskaka. Sagðist vinurinn hafa talið sig vera að borða venjulega köku. Neitaði hann því að hafa tekið inn lyf umrætt kvöld fyrir utan blóðþrýstingslyf.

Eiginkona hins ákærða og sonur þeirra báru vitni fyrir dóma. Eiginkonan sagðist hafa hringt á sjúkrabíl og það væri ekki rétt að eiginmaður hennar hafi gert tilraunir til að koma í veg fyrir að vinur hans gæti hringt eftir aðstoð. Sagðist hún hafa orðið forviða þegar hún hafi heyrt um hvers konar köku var að ræða.

Sonurinn sagði innihaldsefni kökunnar ekki hafa verið rædd en minnti að faðir sinn hafi kallað hana bjórköku. Um hafi verið að ræða eina köku sem skipt hefði verið í þrjá hluta. Tók hann undir með móður sinni um að vinurinn hafi verið orðinn verulega æstur en að enginn hafi reynt að hamla tilraunum hans til að kalla eftir aðstoð.

Hætta

Í niðurstöðu Héraðsdóms Vestfjarða segir að hinn ákærði hafi gengist við háttsemi sinni og miðað við framburð hans verið meðvitaður um innihaldsefni kökunnar. Hann hafi skýrt hegðun sína þannig að vinur hans hafi verið ölvaður og ætlunin hafi verið að róa vininn niður svo að maðurinn sjálfur gæti farið að sofa. Telur dómurinn manninn ekki hafa ætlað að koma vini sínum í það ástand sem raunin varð og þar af leiðandi ekki vísvitandi ákveðið að stefna líkamlegri eða andlegri heilsu vinar síns í hættu. Þessu til stuðnings verði að horfa til þess að hinn ákærði og sonur hans hafi báðir fengið sér bita sem bendi ekki til að hann hafi vitað að neysla á kökunni gæti haft bráða hættu í för með sér.

Engin gögn liggi þar að auki fyrir um innihaldsefni kökunnar önnur en skyndipróf á þvagi vinarins sem hafi reynst jákvætt fyrir kannabis.  Ekkert liggi hins vegar fyrir um magn kannabisefna í kökunni, styrkleika þeirra í blóði eða þvagi
vinarins, eða aðra þætti sem varpað geti ljósi á það hvort lífi eða heilsu hans var bráð hætta búin af neyslu kökunnar. Lögregla hafi ekki beðið um að tekin yrðu blóð- eða þvagsýni og ekki gert tilraun til þess að nálgast kökuna eða leifar af henni fyrr en daginn eftir.

Sömuleiðis hafi vinurinn verið undir áhrifum áfengis og gögn skorti um þau áhrif sem það kunni að hafa haft á ástand hans.

Héraðsdómur segir ekkert hafa komið fram í málinu sem bendi til að lífi eða heilsu vinarins hafi verið stefnt í augljósan háska. Því verði að sýkna hinn ákærða.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab