Ómar Ingi gæti verið frá út árið

Ómar Ingi Magnússon.

Ómar Ingi Magnússon. AFP/Johan Nilsson

Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon verður frá keppni næstu vikur og óvíst er hvort hann leiki meira með Magdeburg á þessu ári.

Handkastið greinir frá. 

Ómar, sem er fyrirliði og lykilmaður í landsliðinu og almennt talinn einn besti handboltamaður heims, lék ekki með Magdeburg í sigri liðsins gegn Hamburg í gær.

Þjálfari Magdeburg, Bennet Wiegert, sagði eftir leikinn að Ómar hefði meiðst aftan í læri í leiknum gegn GOG í Meistaradeild Evrópu og yrði frá keppni um tíma. Hann vildi þó ekki gefa út neinar tímasetningar á endurkomu hans.

Viggó einnig að glíma við meiðsli

Þá er einnig fjallað um stöðu Viggós Kristjánssonar í nýjasta hlaðvarpsþætti Handkastsins. Viggó, sem leikur sömuleiðis í stöðu hægri skyttu, hefur ekki verið með Erlangen að undanförnu og er óvissa um þátttöku hans á heimsmeistaramótinu.

Viggó Kristjánsson.

Viggó Kristjánsson. AFP/Johan Nilsson

Í 35 manna landsliðshópi Íslands eru fjórir aðrir leikmenn sem geta leikið í stöðu hægri skyttu: Kristján Örn Kristjánsson, Teitur Örn Einarsson, Arnór Snær Óskarsson og Jóhannes Berg Andrason.

Ísland spilar æfingaleiki gegn Kúveit í aðdraganda heimsmeistaramótsins í janúar.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab