Vill skýra mörk valds ríkislögreglustjóra í almannavörnum
Í frumvarpinu er fjallað sérstaklega um samhæfingu aðgerða vegna heilbrigðisvár sem fellur undir sóttvarnalög. mbl.is/Kristinn Magnússon
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir vill að ný almannavarnalög kveði skýrt á um að ákvarðanir ríkislögreglustjóra við samhæfingu aðgerða skerði ekki lögbundið ákvörðunarvald annarra stjórnvalda.
Hún kallar jafnframt eftir því að skýrt verði hver beri heildarábyrgð á viðbúnaði heilbrigðiskerfisins vegna stórfelldra hópslysa, náttúruhamfara og annarra atburða sem falla utan sóttvarnalaga.
Þetta kemur fram í umsögn Guðrúnar um frumvarp til nýrra almannavarnalaga sem birt var á vef Alþingis í dag. Hún tekur undir meginmarkmið frumvarpsins og leggur til að ábyrgð og verkaskipting verði skýrð nánar.
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir kallar jafnframt eftir því að skýrt verði hver beri heildarábyrgð á viðbúnaði heilbrigðiskerfisins vegna stórfelldra hópslysa, náttúruhamfara og annarra atburða sem falla utan sóttvarnalaga. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ríkislögreglustjóri skeri úr ágreiningi
Samkvæmt 27. gr. frumvarpsins á ríkislögreglustjóri að skera úr ef ágreiningur kemur upp í samhæfingarstöð almannavarna um hver skuli gefa fyrirmæli eða hvaða fyrirmæli skuli gefin. Ekki yrði unnt að skjóta þeirri ákvörðun til ráðherra.
Guðrún tekur undir að ríkislögreglustjóri stýri samhæfingarstöðinni. Hún leggur til að ákvæðið verði skýrt þannig að vald hans til að skera úr ágreiningi taki til samhæfingar aðgerða. Sóttvarnalæknir, heilbrigðisráðherra og önnur sóttvarnayfirvöld haldi þeim heimildum sem þeim eru faldar í sóttvarnalögum þegar almannavarnakerfið er virkjað.
Samkvæmt 27. gr. frumvarpsins á ríkislögreglustjóri að skera úr ef ágreiningur kemur upp í samhæfingarstöð almannavarna um hver skuli gefa fyrirmæli eða hvaða fyrirmæli skuli gefin. Ekki yrði unnt að skjóta þeirri ákvörðun til ráðherra. Halla Bergþóra Björnsdóttir er ríkislögreglustjóri. mbl.is/Eyþór
Óljóst hver ber ábyrgð á viðbúnaði vegna stóráfalla
Í frumvarpinu er fjallað sérstaklega um samhæfingu aðgerða vegna heilbrigðisvár sem fellur undir sóttvarnalög. Guðrún segir hins vegar að enn vanti skýrari ákvæði um hver beri ábyrgð á undirbúningi og samhæfingu heilbrigðisþjónustunnar á landsvísu vegna annarra atburða sem geta reynt verulega á heilbrigðiskerfið. Hún nefnir náttúruhamfarir og stórfelld hópslys sem dæmi.
Landspítali hefur frá árinu 2008 séð um að manna heilbrigðisáhöfn samhæfingarstöðvar almannavarna í umboði heilbrigðisráðuneytisins. Að sögn Guðrúnar hefur hlutverk spítalans fyrst og fremst falist í að bregðast við þegar almannavarnaástand skapast.
Hún vill að í lögum eða reglugerð verði skýrt hver beri ábyrgð á undirbúningi á landsvísu, þar á meðal gerð viðbragðsáætlana, æfingum og samstarfi heilbrigðisstofnana. Embætti landlæknis vakti athygli á sama álitaefni í umsögn um fyrra frumvarp í desember í fyrra.
Segir endurskoðun áætlana hafa tafist
Guðrún segir landsbundnar viðbragðsáætlanir, þar á meðal áætlun vegna heimsfaraldurs, hafa verið æfðar of sjaldan og endurskoðun þeirra hafa tafist. Frumvarpið felur ríkislögreglustjóra að sjá til þess að æfingar fari fram.
Guðrún vill að jafnframt verði kveðið á um hversu oft skuli að lágmarki æfa og endurskoða áætlanirnar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

