Þúsundir flúðu tónleika í Manchester

Um 12.000 manns voru á tónleikunum.

Um 12.000 manns voru á tónleikunum. AFP/Ryan Jenkinson

Um tólf þúsund tónleikagestum var gert að rýma stærstu innanhússhöll Bretlands eftir að óþekktu efni var sleppt þar innandyra í gærkvöldi að sögn breskrar lögreglu.

Tónleikarnir voru með bandaríska rapparanum Don Toliver í Co-op Live-höllinni í borginni Manchester.

Viðbragðsaðilar voru kallaðir út eftir að tilkynningar bárust um fólk í mannfjöldanum sem fann fyrir áhrifum af óþekktu efni.

Einn fluttur á sjúkrahús

Breska lögreglan hefur lýst atvikinu sem alvarlegu en nokkrir tónleikagestir greindu frá aukaverkunum eftir að hafa komist í tæri við efnið og þá var einn fluttur á sjúkrahús. 

Lögreglan er sögð vinna að því að finna orsök atviksins ásamt því sem unnið er að greiningu efnisins. 

Sjúkraflutningamenn á vettvangi mátu ástandið á meira en 50 manns, þar á meðal nokkrum sem greindu frá einkennum í augum og öndunarfærum. 

Frestar tónleikum kvöldsins

Þá frestaði Don Toliver fyrirhuguðum tónleikum sínum í O2-höllinni í Lundúnum í kvöld. Ásamt því skrifaði hann í Instagram-færslu sinni: „Hugur minn og bænir eru hjá öllum sem slösuðust í gærkvöldi.“

Tónleikagestir sögðu við fréttastofu BBC að fólk hefði verið að kafna og lýstu átakanlegum aðstæðum þegar fólk yfirgaf staðinn í óðagoti. 

Þá gagnrýndu sumir þeirra skort á öryggiseftirliti á staðnum, sérstaklega í borg sem enn ber ör eftir sprengjuárásina í Manchester Arena-tónleikahöllinni árið 2017, þar sem 22 létust á tónleikum Ariönu Grande.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab