Smákaka varð að stórmáli
Maðurinn sagðist fyrir dómi hafa verið í heimsókn hjá félaga sínum þegar sá sótti poka í kæli og sagði eitthvað á þá leið að „jólakökurnar“ væru mættar. Mynd úr safni. Ljósmynd/Colourbox
Maður varð kvíðinn, hlaut hraðan hjartslátt og ofsóknarkennd eftir að hafa borðað köku sem hann taldi vera venjulega smáköku. Hann fékk aðhlynningu á vettvangi og fór síðan á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði. Skyndipróf á þvagi hans reyndist jákvætt fyrir kannabisefnum.
Héraðsdómur Vestfjarða sýknaði manninn sem gaf honum kökuna af ákæru um hættubrot. Dómurinn taldi ósannað að neysla kökunnar hefði stofnað lífi eða heilsu mannsins í augljósan háska. Dómurinn féll 19. nóvember en var birtur í dag.
Sagði „jólakökurnar“ vera mættar
Atvikið varð í Vesturbyggð 11. nóvember 2024. Maðurinn sagðist fyrir dómi hafa verið í heimsókn hjá félaga sínum þegar sá sótti poka í kæli og sagði eitthvað á þá leið að „jólakökurnar“ væru mættar.
Hann sagðist hafa borðað heila köku í þeirri trú að um venjulega smáköku væri að ræða. Honum fannst bragðið eðlilegt.
Ákærði hélt því fram að manninum hefði verið ljóst hvers konar köku hann fékk. Hann sagðist hafa kallað hana „bjórköku“ eða „grasköku“. Sonur ákærða mundi eftir að faðir hans hefði kallað hana „bjórköku“ en rak ekki minni til þess að innihald hennar hefði verið rætt sérstaklega.
Manninum fór að líða illa síðar um kvöldið. Læknir sem kom á vettvang sagði hann hafa verið með mjög hraðan púls og háan blóðþrýsting. Að mati læknisins samræmdust einkennin kannabisneyslu.
Taldi augljósan háska ósannaðan
Dómurinn taldi niðurstöðu skyndiprófsins benda til þess að kakan hefði innihaldið kannabisefni. Magn þeirra í kökunni var óþekkt, sem og styrkur þeirra í blóði eða þvagi mannsins.
Lögregla óskaði ekki eftir blóð- eða þvagsýni og við leit á vettvangi daginn eftir fannst ekkert saknæmt. Fyrir lá að maðurinn hafði neytt áfengis um kvöldið en gögnin vörpuðu ekki ljósi á hvaða áhrif það hafði á ástand hans.
Dómurinn taldi læknisgögnin ekki sýna fram á að ástand mannsins hefði beinlínis verið hættulegt, þótt hann hefði fundið fyrir mikilli vanlíðan og ofsahræðslu. Þá taldi dómurinn ósannað að ákærði hefði vísvitandi stofnað heilsu mannsins í hættu. Þar leit dómurinn meðal annars til þess að ákærði og sonur hans fengu sér einnig bita af kökunni.
Málið hafði áður verið fellt niður
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum felldi málið niður í maí 2025. Ríkissaksóknari felldi þá ákvörðun úr gildi í júlí sama ár og í kjölfarið var gefin út ákæra.
Í kjölfar sýknunnar vísaði dómurinn kröfu mannsins um 800 þúsund krónur í miskabætur frá dómi og lagði allan sakarkostnað á ríkissjóð.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗